- Advertisement -

Sækjum fjármagnið – styrkjum Ísland

Stjórnmál:

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:

„Frábærir fundir með fjárfestum í London í dag um tækifærin á Íslandi. Til að afla fjárfestingar í íslensku atvinnulífi og kynna nýja innviðafélagið okkar, Göng og brú, fyrir fulltrúum stærstu innviðafjárfesta í heiminum.

Fyrsta verkefni Ganga og brúar er að fjármagna Ölfusárbrú og Fljótagöng samhliða því að undirbúa útboð fyrir tvöföldun Hvalfjarðarganga og Sundabraut. Við förum hratt af stað. Og áhuginn er mikill.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við getum öll
lagt okkar
af mörkum.

Í gær ávarpaði ég Arctic Investments-ráðstefnuna sem var haldin í Royal Society í London. Þar lagði ég áherslu á að Ísland er opið fyrir erlendri fjárfestingu. Enda höfum við góða reynslu af samstarfi á því sviði – ekki síst þegar stjórnvöld hafa tekið frumkvæði og lagt sitt af mörkum.

Fjárfestingartækifærin eru klárlega til staðar. Og ríkisstjórnin er sannarlega staðráðin í að gera sitt.

Með fyrstu formlegu atvinnustefnu Íslands sem var samþykkt fyrr á þessu ári. Með því að afla orku, einfalda regluverk og vinna aftur skipulega að stærri fjárfestingarverkefnum úr forsætisráðuneytinu. Með því að hefja stórframkvæmdir í samgöngum á ný og styðja áfram myndarlega við rannsóknir og þróun. Og síðast en ekki síst með því að skapa breiða sátt í samfélaginu um auðlindagreinarnar okkar.

Þessi sýn snýst ekki bara um verðmætasköpun og velferð. Heldur líka að styrkja Ísland og sýna að lýðræðið geti virkað hratt og vel – þegar kemur að því að byggja innviði og skila áþreifanlegum árangri fyrir almenning.

Við getum öll lagt okkar af mörkum. Takk fyrir að lesa og góða helgi!“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: