- Advertisement -

Neytendastofa segir nei við Sparnað

Neytendur Allianz kvartaði til Neytendastofu vegna markaðssetningu Sparnaðar á viðbótarlífeyristryggingu.

Sparnaður hafði í samanburðarauglýsingu sem notuð var við í símasölu, og hafði að auki, í einhverjum tilvikum sent neytendum í tölvupósti borið saman viðbótarlífeyristrygging sem þýsku tryggingafélögin Bayern og Allianz bjóða hér á landi.

„Í heildina var kvörtunin í níu liðum þar sem Allianz kvartaði yfir ósönnum fullyrðingum og villandi framsetningu á mismuni á kostnaði við þjónustu. Fullyrðingarnar snéri meðal annars að þýskri ríkisábyrgð og að öryggi og styrkur Bayern sé meiri en Allianz. Þá taldi Allianz einnig að framsetning Sparnaðar á samanburði iðgjaldakostnaðar, upphafskostnaðar og hagnaðarhlutdeildar væri villandi,“ segir Neytendastofa.

Neytendastofa taldi Sparnað, hafa í sjö tilvikum af þeim níu sem kvartað var yfir, brotið gegn góðum viðskiptaháttum ýmist gagnvart neytendum þar sem þeim væru veittar villandi upplýsingar eða gagnvart Allianz þar sem framsetning væri ósanngjörn og til þess fallin að hafa áhrif á eftirspurn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: