- Advertisement -

Skilyrði SA lítil sem engin hækkun!

Björgvin Guðmundsson.


Björgvin Guðmundsson skrifar:

Verkalýðshreyfingin hefur sett fram þá sjálfsögðu kröfu, að nýir kjarasamningar gildi frá síðustu áramótum, þegar samningar margra félaga runnu út. Nú hafa atvinnurekendur svarað og segja: Við getum samþykkt þetta með skilyrðum. Skilyrðin eru þessi, að ekki verði boðuð verkföll og að ekki verði samið um „óraunhæfar kauphækkanir“.

Þetta þýðir , að samið verði um 0 í kauphækkun eða 1,2% eins og SA hefur boðið en 1.2% þýðir 3600 kr hækkun,sem þýðir að lægstu laun eftir skatt hækki í 240 þús á mánuði!! 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Björgvin Guðmundsson skrifar:

Þetta er alger brandari. Það hefði verið manneskjulegra að SA hefði neitað kröfu verkafólks um afturvirkni. Framkvæmdastjóri SA er með margar milljónir í mánaðarlaun. Ráðherrar og forsætisráðherra með 1,8- 2 millj á mánuði. En þessir aðilar vilja skammta láglaunafólki 303.600 kr á mánuði,240.000 eftir skatt. Þær ættu að reyna að lifa á þeirri hungurlús sjálfir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: