- Advertisement -

HÁLFUNNAR TILLÖGUR UM HÚSNÆÐISMÁL!

Gallinn við tillögurnar er sá, að þær eru aðeins hálfunnar.

Björgvin Guðmundsson skrifar:

Átakshópur (hugmyndahópur) um húsnæðismál hefur skilað áliti.
Hópurinn gerði margar athyglisverðar tillögur. En nú er eftir að athuga hvað unnt er að framkvæma af þeim og hvað þær kosta. Í hópnum voru fulltrúar 3ja ráðuneyta ,aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga o.fl.

Gallinn við tillögurnar er sá, að þær eru aðeins hálfunnar. Þetta eru hugmyndir. En það er alveg eftir að athuga hvað ríki og sveitarfélög vilja framkvæma af þessu og hvað það kostar. Einnig er mjög mikilvægt að finna hvað unnt er að framkvæma fljótt svo það hafi áhrif á kjaradeilunni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ríkisstjórnin gaf átakshópnum (hugmyndahópnum) allt of langan frest til þess að skila áliti, 4 vikur. Hópurinn hefði ekki þurft nema 1-2 vikur Síðan hefðu ríki og sveitarfélög átt að fjalla um hugmyndirnar og leggja fram aðgerðaráætlun strax í gær. Þetta er mál, sem þolir enga, ef það á að hafa áhrif í kjaradeilunni. En það er ekki von,að ráðherrar með 1,8-2 millj. á mánuði, fyrir utan hlunnindi, átti sig á því, að verkamaður með 235 þús.kr eftir skatt á mánuði getur ekki beðið eftir kjaraleiðréttingu. Hann þarf að fá hana strax. Samningar runnu út um síðustu áramót. Og SA hefur ekki viljað samþykkja, að nýir samningar gildi frá síðustu áramótum!
Hópurinn taldi, að auka þyrfti framboð á húsnæði en talið er að það vanti 2000 íbúðir, til viðbótar við þær íbúðir,sem eru í pípunum nú. Aðalvandamálið er að leysa húsnæðisvanda þeirra tekjulægstu. Þeir þurfa ódýrar leiguíbúðir. Í því sambandi er bent á, að óhagnaðardrifin félög, sem mundu byggja leiguíbúðir þyrftu að lækka leigu um 20 þús. á mánuði. Það mundi muna um það.

En allt snýst þetta um krónur og aura. Hvað vill ríkið bæta við miklum peningum í húsnæðismálin. Hvað vilja sveitarfélögin bæta miklu við? Það er alveg eftir að athuga það.  Og ríkið hefur ekki verið mjög örlátt á fjármagn til húsnæðismála. Kannski breytist það nú, eða hvað?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: