- Advertisement -

Hin milda ásjóna hinnar grimmu stefnu

Bæði Birgir Ármannsson og Jón Steinar Gunnlaugsson hafa talað.

Gunnar Smári skrifar:

Gunnar Smári Egilsson.

Ég skil ekki þessa spennu fyrir því hvað Katrín segir. Bæði Birgir Ármannsson og Jón Steinar Gunnlaugsson hafa talað. Línan er komin: Málinu verður áfrýjað (afleiðingum frestað enn) til yfirréttar, hamrað á að dómur Mannréttindadómsins hafi engar sjálfkrafa afleiðingar (ekkert liggur á), íslenskir dómstólar hafi úrskurðað um að dómaraefnin hafi verið rétt skipuð og dómurinn raski því ekki (við erum fullvalda, þurfum ekki og eigum ekki að eltast við hugmyndir útlendinga), mikilvægt sé að tryggja að Landsréttur haldi áfram störfum og röskunin verði sem minnst (látum eins og ekkert sé) og að dómurinn finni að málsmeðferð ráðherra, þings og forseta og því sé fráleitt að krefjast þess að Sigríður Andersen segi af sér.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Meginhlutverk Katrínar Jakobsdóttur er að vera talsmaður ríkisstjórnarinnar, mild ásjóna grimmrar stefnu, valdníðslu og yfirgangs yfirstéttarinnar gagnvart hagsmunum almennings. Hún mun framreiða eitthvert orðasalat í hádeginu úr hráefninu frá hinum innmúruðu og innvígðu. Stuðningsfólk hennar mun finnast það hljóma vel þótt það skilji ekki alveg hvað hún er að segja, en það er vant því. Aðrir munu fussa og sveia en það er lið er hvort sem er alltaf að fussa og alltaf að sveia.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: