- Advertisement -

Fjármálaáætlunin brást strax

Ríkisstjórnin ákvað hins vegar að stinga höfðinu í sandinn.

Þorsteinn Víglundsson skrifar:

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára, sem kynnt var um helgina, er brostin áður en hún kemur úr prentsmiðju. Efnahagsforsendur áætlunarinnar eru og voru frá upphafi fullkomlega óraunhæfar, líkt og við í Viðreisn bentum ítrekað á í umræðu um fyrstu áætlun stjórnarinnar fyrir ári síðan. Þar er ekki aðeins um að ræða yfirstandandi lífróður WOW, þó vissulega setji staða félagsins ein og sér stórt strik í reikninginn.

Ekkert varð af loðnuvertíð, sem ráð er fyrir gert í efnahagsforsendum stjórnarinnar, ferðamönnum fer fækkandi, fasteignamarkaður sýnir skýr merki kólnunar þessa dagana, verulega hefur dregið úr vexti einkaneyslu og raunar eru flestir hagvísar niður á við þessa dagana. Stjórnendur fyrirtækja hafa ekki verið jafn svartsýnir um langt árabil og leiðandi hagvísar sem ráðgjafafyrirtækið Analytica gefur út hefur farið lækkandi 13 mánuði í röð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ríkisstjórnin ákvað hins vegar að stinga höfðinu í sandinn og láta sem ekkert væri. Það fellur þá væntanlega í hlut þingsins að koma áætlun ríkisstjórnarinnar niður á jörðina og aðlaga að þeim efnahagslega veruleika sem við blasir.

Fullkomið aðhaldsleysi ríkisstjórnarinnar í fyrstu tveimur fjárlögum hennar sníður þinginu nokkuð þröngan stakk ef takast á að koma í veg fyrir að skera þurfi niður í ríkisfjármálum eina ferðina enn á tímum efnahagslegrar niðursveiflu. Gildandi fjármálastefna setur okkur nokkuð þröngan stakk. Takist ekki að bjarga WOW blasir við að þá stefnu þarf að endurskoða.

Fengið af Facebooksíðu Þorsteins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: