- Advertisement -

Raunhæf þjóðhagsspá – eða óskaspá?

Gert er ráð fyrir engum breytingum á gengi krónunnar næstu árin. Engum! Hér verð ég bara að spyrja í hvaða heimi menn eru eiginlega?

Ágúst Ólafur Ágústsson skifar:

Í morgun kom fram ný þjóðhagsspá Hagstofu Íslands en það er lykilplagg því fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu 5 ára upp á 5.000 milljarða, sem nú er til umræðu í fjárlaganefnd Alþingis, byggist á þessari spá. Það er mjög fróðlegt að fara yfir þessa spá sem verður að teljast vera óskaspá frekar en raunhæf spá. Hér má finna nokkra punkta sem ég vil draga fram:

1. Nú er spáð fyrsta samdrættinum á landsframleiðslunni síðan 2010 í hagkerfinu. Samdráttur á að vera 0,2% á árinu 2019 en þegar við ræddum síðustu fjármálaáætlun í fyrra var gert ráð fyrir 2,8% hagvexti fyrir 2019 í febrúarspá 2018. Viðsnúningurinn er alger. Nú hefur það ræst sem við sögðum í fyrra þegar við gagnrýndum ríkisstjórnina fyrir að gera ráð fyrir 14 ára samfleyttum hagvexti sem hefur aldrei gerst síðan Ísland byggðist.

Þú gætir haft áhuga á þessum
„Nægir þar að nefna frekari áhrif gjaldþrots WOW, loðnubrestur, kjarasamningar, óvisst olíuverð, hærri flugfargjöld o.s.frv.“

2. Strax á næsta ári er spáð svipuðum hagvexti og var áður gert ráð fyrir eða 2,6% í stað 2,8% (í raun er gert ráð fyrir svipuðum hagvexti næstu 5 árin og hafði verið spáð). Að mínu mati eru mjög litlar líkur að það gerist enda eru miklar blikur á lofti. Nægir þar að nefna frekari áhrif gjaldþrots WOW, loðnubrestur, kjarasamningar, óvisst olíuverð, hærri flugfargjöld o.s.frv. Í svona árferði má ætla að fólk og fyrirtæki haldi að sér höndum í neyslu, ráðningum og fjárfestingum.

3. Áhrif „lífskjarasamninga“ eru nánast engin á verðlag að mati Hagstofunnar og segir það sína sögu um þá. Almennt séð hafa launahækkanir „lífskjarasamninganna“ nánast engin áhrif á nýja þjóðhagsspá og framlagða fjármálaætlun frá því í mars og segir það einnig sína sögu um innihald þessara samninga sem eru frá því í apríl.

4. Spáð er nánast sama atvinnuleysi og áður var gert ráð fyrir og er það einnig talsverð óskhyggja að mínu mati. Einungis í mars urðu 1.600 manns atvinnulaus (til viðbótar við þau 6.900 manns sem voru atvinnulaus fyrir í landinu ). Það er eins og allir á Ísafirði hefðu orðið atvinnulaus á einu bretti. Mikil óvissa er í ferðaþjónustu og víðar en t.d. eru enn tæplega 3.000 manns sem vinna í bönkum á Íslandi sem er ekki líklegt að haldist til lengri tíma m.a. vegna breytinga í fjármálaþjónustu.

5. Gert er ráð fyrir nánast engum breytingum á verðbólgu frá fyrri spá. Á næsta ári er spáð að verðbólgan verði 3,2% í stað 3,3% í fyrri spá. Ég myndi ekki setja mikinn pening á að sú spá rætist.

„Ekkert OECD ríki hefur upplifað eins miklar sveiflur í raungengi gjaldmiðilsins síns eins og Ísland hefur gert undanfarin 15 ár. Síðustu 12 mánuði hefur gengi krónunnar veikst um 13% en þumalputtareglan er að bara sú lækkun krónunnar myndi þýða 4% aukningu á verðbólgu.“

6. Gert er ráð fyrir engum breytingum á gengi krónunnar næstu árin. Engum! Hér verð ég bara að spyrja í hvaða heimi menn eru eiginlega? Ekkert OECD ríki hefur upplifað eins miklar sveiflur í raungengi gjaldmiðilsins síns eins og Ísland hefur gert undanfarin 15 ár. Síðustu 12 mánuði hefur gengi krónunnar veikst um 13% en þumalputtareglan er að bara sú lækkun krónunnar myndi þýða 4% aukningu á verðbólgu.

7. Gert er ráð fyrir nánast engum breytingum á olíuverði næstu árin þrátt fyrir Íran, Venesúela, Trump á twitter, breytta neytendahegðun o.s.frv.

8. Samneyslan (neysla hins opinbera) er lækkuð milli spáa og er það þvert á yfirlýsingar sumra ráðherra um að hér bæri að auka samneyslu frekar en hitt.

9. Ætli eina spáin sem rætist verði einmitt sú að þessi þjóðhagsspá rætist ekki…


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: