- Advertisement -

Vigdís: Kosningasvindl er heimilt


Hún kærir úrskurð kærunefndarinnar til dómsmálaráðuneytisins.

„Ekki verður komist að annarri niðurstöðu en þeirri að heimilt sé að stunda kosningasvindl í lögbundnum kosningum, svo framarlega að það komist ekki upp innan umrædds sjö daga ákvæðis laganna.“

Þetta segir Vigdís Hauksdóttir eftir að kæru hennar um ógildingu borgarstjórnarkosninganna var vísað frá.

Vigdís hefur sent frá sér eftirfarandi:

Meirilhutinn er rúinn trausti.

„Fréttatilkynning
Efni: Úrskurður kjörnefndar

Úrskurður kjörnefndar sem Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu var falið að skipa að ósk dómsmálaráðuneytisins er gríðarlegt áfall fyrir lýðræðið í landinu. 
Kæru minni um ógildingu borgarstjórnarkosninga, sem fram fóru í Reykjavík hinn 26. maí 2018 er vísað frá.

Samkvæmt 93. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, er kærufrestur sjö dagar frá því að lýst er úrslitum kosninga. Nefndin vísar kæru minni frá á þessu tæknilega atriði og sinnir engu þeim alvarlegu lögbrotum sem Persónuvernd upplýsti um í frumkvæðisathugun sinni og úrskurðaði um með þessum ákvörðunarorðum: 
„Vinnsla Reykjavíkurborgar og rannsakenda við Háskóla Íslands á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands, sem fólst í að senda mismunandi skilaboð til ungra kjósenda fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018, samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.
Vinnsla Reykjavíkurborgar á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands, sem fólst í að senda skilaboð til kvenna 80 ára og eldri og erlendra ríkisborgara fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018, samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.
Vinnsla Þjóðskrár Íslands á persónuupplýsingum sem fól í sér afhendingu upplýsinga til Reykjavíkurborgar um kyn og ríkisfang erlendra ríkisborgara samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.“

Ekki verður komist að annarri niðurstöðu en þeirri að heimilt sé að stunda kosningasvindl í lögbundnum kosningum, svo framarlega að það komist ekki upp innan umrædds sjö daga ákvæðis lagana.

Meirihlutinn ásamt borgarstjóra er rúinn trausti. Búið er að upplýsa um alvarleg lögbrot í aðdraganda kosninganna, og sé ég mér því ekki annað fært en að kæra úrskurð kærunefndarinnar til dómsmálaráðuneytisins, sbr. 3. mgr. 93. gr.

Með því tæmi ég endanlega allar kæruleiðir innanlands, eins og ég var búin að lofa Reykvíkingum og landsmönnum öllum.

Virðingarfyllst 
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: