- Advertisement -

Landspítalinn verr settur en 2008

Síðan þá hefur hallað undan fæti.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, skrifar pistil á heimasíðu spítalans. Hann segir þar:

„Eftir mjög erfiða aðlögun að eftirhrunsfjárframlögum, þar sem spítalinn dró saman rekstrarkostnað sinn um rúmlega 20% á ársgrundvelli, fóru fjárframlög að aukast frá árinu 2014. Sú góða þróun hefur haldið áfram og segja má að fjárveitingar liggi nú nærri þeim upphæðum (á föstu verðlagi) sem runnu til spítalans árið 2008. Frá þeim tíma hefur þjónustan hins vegar aukist og þeim fjölgað sem hana þurfa, sér í lagi þeim sem þurfa á flókinni og dýrri þjónustu að halda. Við erum því ekki komin á sama stað og 2008 – en  reksturinn var þrátt fyrir þetta í jafnvægi árið 2016. Síðan þá hefur hallað undan fæti, einkum vegna kjarasamninga við stórar fagstéttir og alvarlegs mönnunarvanda en fleira kemur auðvitað til. Halli síðasta árs nam 1,4 milljarði og bætist við halla yfirstandi árs og var þetta ljóst strax þegar fyrsta ársfjórðungsuppgjör spítalans lá fyrir. Við hófum þegar að vinna að aðgerðum til að mæta þessari stöðu.  Þar sem ljóst var að umfangið krafðist aðgerða sem kallaði á að fagráðuneyti okkar tæki afstöðu til þá upplýsti ég heilbrigðisráðuneytið formlega þar um, í  samræmi við lög um opinber fjármál. Við höfum átt í ágætu samráði við ráðuneytið um þessa alvarlegu stöðu. Aðgerðir sem við höfum ekki þegar hrundið í framkvæmd eru í útfærslu og ljóst að þær verða umfangsmiklar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: