- Advertisement -

Þingmenn VG vilja takmarka völd Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra

„…uppbyggingaráform hafa ekki komið til umræðu fyrr en eftir að þau hafa verið samþykkt.“

Allir þingmenn Vinstri grænna, að undanskildu þríeykinu, Katrínu, Svandísi og Steingrími J. hafa lagt fram lagafrumvarp um breytingar á varnarmálalögum. Þau vilja takmarka vald utanríkisráðherra hvað varðar hernaðaruppbyggingu á Íslandi.

Í greinagerð frumvarpsins segir:

„Umræður um varnarmál hafa á síðustu árum fyrst og fremst snúist um orðna hluti, þ.e. uppbyggingaráform hafa ekki komið til umræðu fyrr en eftir að þau hafa verið samþykkt. Þannig er það árvisst að þegar Bandaríkjaþing samþykkir fjárlög virðast margir á Íslandi fyrst átta sig á því að um framkvæmdir og uppbyggingu hafi verið samið á varnarsvæðinu.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Kolbeinn Óttarsson Proppé fer fyrir óbreyttum þingmönnum Vinstri grænna.

Fyrir þessu er m.a. sú ástæða að ekki þarf samþykki Alþingis fyrir slíkri uppbyggingu, heldur fer ráðherra málaflokksins með umboð til samninga fyrir Íslands hönd. Breytingar á eðli varnarsamningsins fá því ekki þá pólitísku umræðu fyrir fram sem eðlilegt hlýtur að teljast.
Hver sem afstaða fólks er til viðveru starfsfólks herliða og uppbyggingar mannvirkja á varnarsvæðinu hlýtur það að vera kappsmál allra að auka lýðræðislega umræðu um varnarmál. Samþykkt Alþingis á breytingum á þeim skyldum sem Ísland tekur sér á herðar styrkir einnig grunn slíkra ákvarðana, hverjar sem þær verða.

Blikur eru á lofti í alþjóðamálum og hafa ýmis valdamikil ríki boðað aukna hernaðaruppbyggingu, oft og tíðum óháð alþjóðlegum samningum. Þá hefur aukinn áhugi á norðurslóðum það í för með sér að áhugi á uppbyggingu hernaðarmannvirkja á eða við svæðið hefur aukist og mun aukast enn.
Þær breytingar á varnarmálalögum sem hér eru lagðar til setja það í hendur lýðræðislega kjörins Alþingis hvort og hvernig uppbyggingu á mannvirkjum tengdum erlendum herliðum verður háttað, sem og viðveru starfsfólks þeirra á Íslandi. Slíkt mundi styrkja þingræðið og stuðla að eflingu Alþingis.“

Frumvarpið er á dagskrá Alþingis í dag. Flutningsmenn þess eru: Kolbeinn Óttarsson Proppé, Andrés Ingi Jónsson, Ari Trausti Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: