- Advertisement -

Vill bekki fyrir hundafólk

´Kolbrún Baldursdóttir.

Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins, vill að borgin leggi hundafólki lið:

„Hundasvæði eru fá á Íslandi miðað við í nágrannalöndunum. Eitt þeirra er á Geirsnefi. Hundagerðið á Geirsnefi hefur staðið í nokkur ár og er ca 600 m2. Á síðastliðnum 10 árum hefur orðið hrein sprenging í hundaeign á höfuðborgarsvæðinu en þjónusta við hundaeigendur hefur því miður ekki náð að fylgja þeirri þróun. Hundagerðið á Geirsnefi er afar vinsælt. Á svæðið vantar tilfinnanlega bekki svo fólk sem er með hunda sína þar geti tyllt sér. Á löngu svæði er enginn bekkur. Flokkur fólksins vill beina því til skipulags- og umhverfisyfirvalda að settir verði bekkir á svæðið með reglulegu millibili.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: