- Advertisement -

Afrekaskrá Vinstri grænna

Bolli Héðinsson skrifaði eftirfarandi í Fréttablað dagsins. Miðjan kýs að birta greinina. 

Ríkisstjórnin hyggst veikja Samkeppniseftirlitið á þann veg að eftirleiðis geti fyrirtæki metið sjálf hvort samkeppni milli þeirra sé næg …

– Samkeppniseftirlitið mun ekki fá að skjóta málum til dómstóla heldur munu fyrirtækin eiga síðasta orðið … (eins og þegar útgerðir láta eigin vigtun á afla gilda um það magn sem þær koma með að landi, ekki það sem hafnarvogin vigtaði. Nú vilja fleiri fyrirtæki fá að njóta sama sjálfdæmis.)

– Ríkisstjórnin hyggst lækka erfðafjárskatt …

Þú gætir haft áhuga á þessum

– Ríkisstjórnin hyggst koma á fót þjóðarsjóði fyrir arðinn af auðlindum þjóðarinnar, en arðurinn af sjávarútvegsauðlindinni er ekki hafður með … (eins og ríkisstjórnin telji fiskimiðin ekki meðal eigna þjóðarinnar, sem henni beri að hafa neinn arð af.)

– Þjóðarsjóðinn á síðan að fela einkafyrirtækjum (á borð við Gamma) að ávaxta í stað Seðlabankans sem hefur boðist til að taka það að sér á svipaðan hátt og gert er í Noregi.

Þetta eru nokkur þeirra mála sem ríkisstjórn undir forystu Vinstri grænna hyggst berjast fyrir á Alþingi. Orkupakkanum hafa þau þegar náð í gegn, pakka sem þau hefðu verið algjörlega mótfallin ef þau hefðu ekki verið í ríkisstjórn.

Á hátíðarstundum í flokksstarfi Vinstri grænna eru hins vegar talin upp afrek þeirra í ríkisstjórnarsamstarfinu. Upptalning VG á árangri er í besta falli almennar yfirlýsingar um náttúruvernd og loftslagsmál og eingöngu í málaflokkum sem nær allir eru sammála um. Ætla má að málefnin sem talin eru upp hér í byrjun stríddu gegn þeim grundvallarsjónarmiðum sem VG segist standa fyrir í orði kveðnu a.m.k.

Við myndun ríkisstjórnarinnar greindi núverandi forseti ASÍ, sem er fyrrverandi framámaður í VG, frá því hvert hún teldi að yrði hlutskipti VG í ríkisstjórninni. Svo virðist sem forspá hennar sé nú þegar orðin að áhrínsorðum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: