- Advertisement -

Halda að RUV sé frá Guði komið

Brynjar Níelsson skrifaði:

Að vísu hefur fréttastofa RUV ekki verið farsæll uppljóstrari og reyndust þessi mál á sandi byggð.

Vinir mínir á fréttastofu RUV hafa verið iðnir við það seinustu ár að upplýsa landsmenn um lögbrot í íslensku samfélagi, sem engum var kunnugt um fyrir. Minnisstæðustu lögbrotin eru vopnaflug Atlanta til Saudi Arabíu, mansalið á kínverskum veitingastað á Akureyri og svo gjaldeyrisbrot Samherja að ógleymdum skattalagabrotum ráðamanna tengdum Vafningi og Wintris. Að vísu hefur fréttastofa RUV ekki verið farsæll uppljóstrari og reyndust þessi mál á sandi byggð. Bundnar eru þó talsverðar vonir við að nýjustu uppljóstranir um skattalagabrot, peningaþvætti og mútur eigi einhverja stoð í raunveruleikanum.

En merkilegt er, með alla þessa öflugu uppljóstrara á fréttastofunni, að það skyldi fara framhjá þeim öllum að í langan tíma hafi RUV brotið gegn samkeppnis- og ríkisstyrkjareglum með tilheyrandi tjóni fyrir aðra. Og þegar upp kemst er ekki kallað eftir ábyrgð eins né neins. Heyrist hvorki hósti né stuna frá Samfylkingunni og Pírötum, sem alla jafna krefjast ábyrgðar og afsagna þegar ekki er farið að lögum. Það verður seint sagt að sumir stjórnmálamenn séu samkvæmir sjálfum sér. Kannski er skýringin sú að margir halda að RUV sé frá Guði komið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: