- Advertisement -

VG í Skagafirði minnir Svandísi á stefnu Vg

Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegsráðherra fékk sendingu norðan úr Skagafirði:

Jón Bjarnason, ráðherrann sem kom strandveiðunum á.

Félagsfundur VG í Skagafirði haldinn 17. janúar 2022 hvetur þingmenn og ráðherra hreyfingarinnar til áframhaldandi góðra verka og til þess að standa vörð um strandveiðarnar sem komið var á í sjávarútvegsráðherratíð Jóns Bjarnasonar og efla þær enn frekar með aukinni hlutdeild í veiðiheimildum. Mikilvægur liður í því er að strandveiðar verði heimilaðar í 48 daga, 12 daga í hverjum mánuði maí – ágúst og öllum veiðisvæðunum verði tryggðir 12 dagar. Fundurinn minnir jafnframt á það sem segir í sjávarútvegsstefnu VG: „Standa þarf vörð um hagsmuni minni sjávarbyggða, smábáta og minni útgerða og möguleika til nýliðunar sem aftur varðveiti fjölbreytni og endurspegli heildstæða nálgun hreyfingarinnar á málefni greinarinnar. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafði frumkvæði að tilkomu strandveiða árið 2009 og tilurð verkefnisins „brothættar byggðir“ og byggðafestukvóta (sértæks byggðakvóta) árið 2012. Að því ber að stefna að aflaheimildir í 5,3% kerfinu verði auknar í hóflegum áföngum með það sem endamarkmið að 8-10% veiðiheimilda verði til ráðstöfunar í slíkum tilgangi. Festa þarf strandveiðar enn betur í sessi og auka svigrúm til félags- og byggðaráðstafana. Skoða á kosti þess að hægt verði að leigja veiðiheimildir af hinu opinbera í tilteknu magni á föstu verði og eftir atvikum á svæðagrundvelli.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: