En þjóðin kaus og hafnaði frekara arðráni.
Jódís Skúladóttir.
Jódís Skúladóttir, fyrrum þingkona fyrir Vinstri græn, skrifaði á Facebook:
„Nú er ég hætt öllum afskiptum af stjórnmálum og tilheyri engu stjórnmálaafli.
Ég held þó áfram að fylgjast með gangi mála og í dag er brotið blað í sögunni og ég er ótrúlega stolt af mínum gömlu samstarfskonum Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland. Ekki síst er ég stolt af Hanna Katrin Friðriksson og Þórunn Sveinbjarnardóttir sem hafa ekki látið ofbeldisfulla áróðursmaskínu sérhagsmunaafla beygja sig.
Gömlu valdaflokkarnir engjast eins og maðkar á öngli. Mál sem hefur árum og áratugum saman verið kallað eftir, þjóðin á auðlindirnar, stórkapítalið á ekki og má ekki kaupa sér niðurstöðu í þingsal eins og það hefur komist upp með í valdatíð XB og XD með stuðningi flokka eins og VG sem þorði aldrei að standa í lappirnar gegn þessum yfirgangi í ótta sínum við að missa spón úr aski. Skömm okkar má vera mikil varðandi sjókvíaeldi og búvörulög þar sem nákvæmlega þetta ofbeldi hefur ráðið för. En þjóðin kaus og hafnaði frekara arðráni.
Til hamingju Ísland, Alþingi hefur í dag dregið línu í sandinn. Lýðræðið virkar!“