- Advertisement -

Ríkisstjórn Kristrúnar setur í bakkgírinn

Víst er að mörgum hefur brugðið við þá frétt að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sé að gefa eftir í veiðigjaldamálinu. Var þá óþarfi að beira 71. greininni eins og gert var í gær? Tilkynnt er í dag að þingmeirihlutinn legði niður vopnin og fari bil beggja. Frumvarpið er nokkuð annað en lagt var af stað með.

Í greinagerð með uppgjöfinni segir:

„Flutningsmenn leggja til að tveimur nýjum ákvæðum til bráðabirgða verði bætt við lög um veiðigjald. Er það gert í kjölfar fundar atvinnuveganefndar 11. júlí 2025 með Byggðastofnun og Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga. Lagt er til að ákvæði frumvarpsins verði innleidd í skrefum og með því er komið til móts við þær áhyggjur sem framangreindir aðilar hafa viðrað. Þá telur meiri hlutinn í atvinnuveganefnd mikilvægt að áhrif frumvarpsins verði metin út frá byggðasjónarmiðum.

Hefði ríkisstjórnin gefist fyrr upp væri málið allt annað. Eftir allt sem á undan er gengið leggur ríkisstjórnin niður vopnin núna. Ábekingar flóttans eru:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eiríkur Björn Björgvinsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Lilja Rafney Magnúsdóttrr, María Rut Kristinsdóttir og Sigurjón Þórðarson.

Málþófsliðar höfðu sagt, kannski í meira þúsund ræðum, að einmitt það væri óhæfa að skella gjaldinu á í einu lagi. Stjórnarliðar hafa kannski ekki hlustað í eitt einasta skipti. Eflaust er margt stuðningsfólk ríkisstjórnar sárt og svekkt.

Hér má lesa hverjar breytingarnar verða.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: