„…ef einhver er að þyrla upp ryki, ef einhver er að efna hér til upplýsingaóreiðu, þá er það í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.“
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Alþingi: Á þingfundinum á föstudaginn var tóku margir til máls. Guðrún Hafsteindóttir var eðlilega þar á meðal. Hún sagði:
„Þessi brussugangur þessarar ríkisstjórnar — ég held að fólk hér, ríkisstjórnarflokkarnir, hafi ekki alveg séð það fyrir. Þau leggja af stað í vegferð um að hefja aðlögunarviðræður aftur að Evrópusambandinu illa undirbúin og hér koma á hverjum degi nýjar upplýsingar þar um.
Ég hef vakið máls á því og lagt það fram að ríkisstjórnin breyti spurningunni sem á að leggja fyrir þjóðina því að mér finnst algjörlega borðleggjandi að þessi spurning eigi einfaldlega að vera: Viltu ganga inn í Evrópusambandið, já eða nei? Það vita það allir að þessi spurning er villandi, það sjá það allir og daginn eftir, ef hún verður samþykkt, mun Ísland hefja fulla aðlögun að Evrópusambandinu. Fólk talar hér um að nú sé svo góður tími og annað en á sama tíma er líka talað um að það hafi orðið svo gríðarlega miklar breytingar að það sé ekki hægt að halda áfram að öllu óbreyttu, en samt á að gera það. Það stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi stjórnarflokkanna í þessu máli og ef einhver er að þyrla upp ryki, ef einhver er að efna hér til upplýsingaóreiðu, þá er það í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.“