„Nú er hún Snorrabúð stekkur. Nú stekkur hver Sjálfstæðismaðurinn fram um annan þveran til þess að koma í veg fyrir að þjóðin fái að ráða sinni framtíð.“
Benedikt Jóhannesson.
Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrum félagi í Sjálfstæðisflokknum, skrifaði:
„Innganga Íslands í NATÓ á sínum tíma var mikið gæfuspor. Það sama má segja um inngönguna í EFTA og aukaðildina að Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn.
Alltaf héldu andstæðingar aðildar því fram að í samningunum fælust svik og landráð. Þau orð eru enn þann dag í dag minnisvarðar um þröngsýni þeirra sem töldu Íslendinga ekki mega koma fram í alþjóðasamstarfi sem fullvalda þjóð sem gæti og þyrði að vinna með öðrum þjóðum, öllum til heilla.
Nú stekkur hver Sjálfstæðismaðurinn…
Í hvert einasta skipti gripu andstæðingar til ósanninda eða hálfsannleiks. Slíkt er einkenni þeirra sem reyna að verja rangan málstað. Það var gæfa Íslands að á þessum tímum var stærsti flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, í fararbroddi þeirra sem börðust gegn varnarleysi og einangrunarhyggju.
Nú er hún Snorrabúð stekkur. Nú stekkur hver Sjálfstæðismaðurinn fram um annan þveran til þess að koma í veg fyrir að þjóðin fái að ráða sinni framtíð. Nú má þjóðin ekki lengur hugsa um fulla aðild að Evrópusambandinu, hvað þá gera eitthvað í málinu.
Einn fyrrverandi þingmaður flokksins hefur þó skapað sér sérstöðu. Vilhjálmur Bjarnason skrifar í Morgunblaðið:
„Ritari [þ.e. Vilhjálmur] biður um vitræna umfjöllun
Ritari hefur látið af afskiptum af stjórnmálum. Engu að síður ber hann þó fram þá frómu ósk að umræða um Evrópusamvinnu og alþjóðlega samvinnu byggist á vitrænum grunni en ekki þjóðrembu með málæði. Öll samvinna byggist á því að láta af hendi og taka á móti. Í samvinnu verður til gagnkvæmur ávinningur beggja samningsaðila.
Íslendingar telja sig verndaða af varnarsamningi við Bandaríkin. Óvíst er um hald í slíkum samningi með ólíkindatól á forsetastóli í Bandaríkjunum.
Nú eru ógnir ekki lengur aðeins hernaðarlegs eðlis. Það er alveg út í bláinn að ræða samvinnu við ríki á EES-svæðinu um þessi mál, enda nær EES-samningur fyrst og fremst til viðskipta.“
Greinina birti Benedikt á Facebook.