- Advertisement -

Sigurður Ingi sefur þú?

Framsókn er í lífshættu. Flokkurinn hefur mælst undir dauðalínunni, fimm prósentunum. Kannski lýsir það stöðunni vel. Meðan flokknum virðist blæða út heyrist ekki múkk, hvorki í Sigurði Inga Jóhannssyni formanni né Lolju Dögg Alfreðsdóttur varaformanni. Kannski er fólk búið að sættast á hægt andlát þessa elsta flokks þjóðarinnar. Þá er það bara svo.

Það er ýmislegt í fari Framsóknar sem bara gengur ekki upp. Að afnema samkeppni á kjötmarkaði er eitt. Uppskera sauðfjárbænda hefur ekki áður verið eins rýr og nú. Nóg um það að sinni.

Framsókn þarf á öðriu að halda en þeirri deyfð sem nú leikur um flokkinn. Það er að segja ef einhver kraftur er eftir í forystu flokksins.

Þátttaka þingmanna í málþófsheimsmetinu hefur alls ekki bætt stöðuna. Þær fáu ákvarðanir sem forystan hefur tekið hafa allar reyns illa. Með þeim árangri að flokkurinn mælist neðan við líflínuna. Sem er ömurlegt fyrir Framsóknarflokkinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sigurjón Magnús.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: