- Advertisement -

Bölsýni Guðrúnar Hafsteinsdóttur varðandi Evrópusambandið

„Stöðugleiki næst ekki með því einu að skipta um gjaldmiðil heldur með ábyrgð í ríkisfjármálum og aga í efnahagsstjórninni.“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.

Guðrún Hafsteinsdóttir talaði ákveðið á Alþingi í gær. Ekki síst þar sem hún talaði um Evrópusambandið og hugsanlegar aðildarviðræður Íslands.

„Ríkisstjórnin boðar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður við Evrópusambandið eigi síðar en árið 2027. Þetta eru fyrstu skrefin á braut sem þjóðin hefur ítrekað hafnað. Aðild myndi þýða að við færum aftur í tímann. Við myndum missa forræði yfir fiskimiðunum. Við myndum missa forræði yfir öðrum auðlindum eins og vatni og hreinni orku. Við myndum missa sjálfstæða rödd á alþjóðavettvangi. Við myndum ganga aftur inn í 12 mílur eftir áratugalanga baráttu fyrir 200 mílna landhelgi. Evrópusambandið myndi einnig öðlast áhrif í gegnum Ísland í Norðurheimskautsráðinu þar sem það hyggst véla við önnur stórveldi um auðlindir svæðisins,“ sagði Guðrún.

Nú brestur mig minni. Hvar og hvenær hefur þjóðin ítrekað hafnað aðildaviðræðum að Evrópusambandinu. Upplýsingar óskast. Áfram með ræðu Guðrúnar:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Þetta er ekki framtíðarsýn sem Íslendingar geta sætt sig við. Ísland hefur á sama tíma náð sér á strik með eigin stefnu og að eigin frumkvæði á meðan stórar bandalagsþjóðir glíma við alvarlegan efnahagsvanda, svo ekki sé minnst á þjóðir í suður- og austurhluta álfunnar. Í heimi óvissu er varfærni dyggð. Það er vægast sagt og vond forgangsröðun að leggja kapp á að hefja aðlögunarviðræður við bandalag sem glímir við eigin vandamál á meðan hér heima bíða verðbólga, háir vextir og húsnæðisskortur.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin ætlar að leita til erlendra sérfræðinga til að komast að fyrirséðri niðurstöðu; að taka upp evru. Þetta er pöntuð niðurstaða sem á að réttlæta pólitískt markmið. Undirliggjandi virðist vera sú trú að evran sé töfralausn. En reynsla annarra þjóða sýnir að svo er ekki. Stöðugleiki næst ekki með því einu að skipta um gjaldmiðil heldur með ábyrgð í ríkisfjármálum og aga í efnahagsstjórninni. Þú flytur ekki inn stöðugleika í efnahagsmálum. Við getum sjálf beitt aga í ríkisfjármálum. Við getum sjálf tryggt stöðugleikann,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins.

Hér má lesa alla ræðu Guðrúnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: