„En það er sjálfsagt og eðlilegt að kanna þetta.“
þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Alþingi: Sigríður Þorbjörg Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar skiptust á skoðunum um stefnu ráðherrans um að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu á þessu ári. Hefur það ekki gengið eftir:
„Ég þakka hæstvirtum dómsmálaráðherra kærlega fyrir svarið. En ástæðan fyrir því að ég er að varpa þessari spurningu hér upp er einfaldlega sú að ég hef ákveðnar grunsemdir um það að embættin hafi ekki verið að nýta þessa fjármuni í aukinn mannskap, að þetta hafi farið í rekstur embættanna sem er mjög víða mjög þungur og var mjög víða mjög þungur.
Ég vildi bara koma hingað upp og benda hæstvirtum dómsmálaráðherra á þetta. Ég held að það færi mjög vel á því að hæstvirtur dómsmálaráðherra myndi gera ákveðna greiningu á því hvernig þessi aðgerð, sem var svo þörf og brýn, að fjölga lögreglumönnum um 50, hafi skilað sér. Það er vont fyrir okkur sem erum hér í þessum þingsal að vera að samþykkja góð verkefni eins og þessi sem ná síðan ekki í gegn út af einhverjum öðrum ástæðum,“ sagði Stefán Vagn, fyrrum yfirlögregluþjónn og nú varaformaður Framsóknarflokksins.
Dómsmálaráðherrann, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir virtist hissa á grunsemdum Stefáns Vagns:
Já, það er auðvitað hlutverk þingsins að veita aðhald sem þetta, það er bæði gott og heilbrigt. Ég hef innsýn í það hvernig þetta hefur unnist hér á höfuðborgarsvæðinu og þar veit ég til þess að ráðið hefur verið í þessar stöður. Hafi ekki verið farið alveg upp í topp í þeim efnum þá stafar það af öðrum ástæðum en þeim sem þingmaðurinn er að lýsa. En það er sjálfsagt og eðlilegt að kanna þetta. Vilji ráðherra og vilji þingsins var auðvitað mjög skýr í þeim efnum að hér væru viðbótarfjármunir að bætast við eingöngu til að efla löggæslu með auknum fjölda manna að störfum og auðvitað ekki gott ef það væri niðurstaðan að lögregluembættin væru ekki að fara að því. Ég hef betri tilfinningu fyrir þessu ástandi en háttvirtur þingmaður, en ég mun kanna þetta,“ svaraði dómsmálaráðherra.