…segir í viðtali við Heimildina að huldufé bandarískra milljarðamæringa hafi greitt fyrir ferð háttsettra Repúblikana til að funda með formanni Miðflokksins…
Stjórnmál: Orðasenna Sigmunar Davíð og Dags B. hefur vaið athygli og skrif. Hér eru tvær færslur skoðaðar. Byrjum á Gunnari Smára:
„Hér segir Sigmundur Davíð: „Kannski varð sú veröld til í Árbænum þegar enginn vildi leika við hann, hann þurfti að búa sér til eigin heim og það birtist núna hér á Alþingi það sem hann talar út frá eigin veruleika, algjörlega án tengsla við raunheiminn. En hann bætir líka við lygum. Lygar, hvar sem hann finnur þær, nýtast honum til að réttlæta heimsmynd sína.“ Dagur er þó að vitna í íslenska og danska fjölmiðla, sem varla geta verið hugarburður úr Árbænum. Æði undarlegt tal á Alþingi.“
Svo er það Oddný Harðardóttir:
„Er hún úr Árbænum þessi rannsóknarblaðamaður Jane Mayer?
Heimildin segir þetta: ,,Rannsóknarblaðamaðurinn Jane Mayer hjá The New Yorker segir í viðtali við Heimildina að huldufé bandarískra milljarðamæringa hafi greitt fyrir ferð háttsettra Repúblikana til að funda með formanni Miðflokksins og öðru áhrifafólki af hægri væng stjórnmála Norðurlanda síðasta sumar.
Í samtali við Heimildina segir hún að markmið milljarðamæringanna sé að draga úr trú almennings á að loftslagsbreytingar séu raunverulegar, enda hafi þeir mikilla hagsmuna að gæta í olíuiðnaðinum. Þá þrýsti þeir á minni takmarkanir á viðskiptafrelsi alþjóðlegra stórfyrirtækja og lægri skatta á þá ríku.
Mayer hefur rannsakað fjármál og spillingu í bandarískum stjórnmálum og hlotið fjölda verðlauna fyrir störf sín. Árið 2016 gaf hún út bókina Dark Money, þar sem hún skoðaði styrkveitingar bræðranna Charles og David Koch í stjórnmálum, en þeir eru meðal helstu aðila bak við net hugveitna og stofnana sem teygja anga sína til Íslands.““