Ríkisstjórnin og háttvirtir þingmenn meirihlutans eru greinilega skjálfandi á beinunum…
Jón Pétur Zimsen.
Alþingi:Það var margt sagt þegar Alþingi ræddi um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram samningaviðræðum um Evrópusambandið eða ekki. Hér er gripið niður í þar sem þau Arna Lára Jónsdóttir Samfylkingu og Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokksins skiptust á oðrsendingum. Það er Arna Lára sem byrjar:
„Mig langar að spyrja þingmanninn sem sér ýmislegt þessu til foráttu. Eitt af því er dagsetningin, að 29. ágúst sé alveg vonlaus, og hann talar um að færa þetta um mánuð. Hvers eiga bændur eins og við Þórarinn Ingi þá að gjalda? Þá erum við að smala. Þannig að ég spyr: Nú er þetta þjóðarinnar. Nú er hægt að kjósa utan kjörstaðar. Er þetta ekki bara fínasti tími þegar fólk er að koma heim úr sumarfríum?“
Jón Pétur Zimsen steig í pontu og sagði:
Þetta heitir fulltrúalýðræði.
„Ég vil þakka háttvirtum þingmanni fyrir ágætisandsvar. Háttvirtur þingmaður spyr um tímasetninguna í lok sumars, í lok ágúst. Fyrir mig og held ég fyrir þjóðina og kjörna fulltrúa — við erum í vinnunni fyrir fólkið í landinu. Við vorum kosin hér fyrir fólkið í landinu. Þetta heitir fulltrúalýðræði. Við verðum að geta sinnt okkar vinnu í kringum þetta. Ef það er ekki þing í gangi — það getur ýmislegt komið upp á í millitíðinni. Við getum gripið til aðfanga sem aðrir geta ekki, sem spjallþáttastjórnendur geta ekki nýtt sér. Við getum beðið um upplýsingar og höfum rétt og kröfu til þess. Þess vegna er þetta algerlega ótæk dagsetning. Hvers vegna er ekki hægt að seinka þessu um mánuð, þegar þingið er við störf? Við getum fylgst með því í aðdraganda kosninga hvað er að gerast, við getum sótt upplýsingar fyrir almenning. Ríkisstjórnin og háttvirtir þingmenn meirihlutans eru greinilega skjálfandi á beinunum yfir að þær upplýsingar berist og yfir því að tíminn líði vegna þess að reynslan sýnir að því meiri tími og því meiri upplýsingar, þeim mun meiri andstaða.“