- Advertisement -

„Hættið þessari minnimáttarkennd“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir:

Mér finnst gott að þessi umræða hafi leitt til þess að jú víst, það er um eitthvað að semja.

„Mig langar að ítreka aftur aðeins og staldra við hvað þessi tillaga felur raunverulega í sér. Hún er fremur einföld: Eigum við að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu eða ekki? Það má segja að sumir sem hafa talað hér haldi að þetta sé eitthvað óskýrt, flókið og jafnvel hættulegt. Mér finnst líka umhugsunarefni hvað er verið að reyna að ala á ótta, en það er gömul baráttuaðferð, eins og það sé ofsalega varhugavert að spyrja þjóðina í sjálfu sér. Það finnst mér ekki. Þessi tillaga felur fyrst og fremst í sér tækifæri fyrir þjóðina okkar til að segja sína skoðun og þar er ekkert að óttast,“ sagði Þorgerður Katrín utanríkisráðherra í þingræðu.

„Við tökum bara eitt skref í einu og ég bara hvet þingmenn stjórnarandstöðunnar til að hætta að vera með þessa vanmáttarkennd eða minnimáttarkennd þegar kemur að því ef þjóðin segir já, hvernig samningsmarkmiðin og hvað við förum í — talandi um það, af því að það hefur verið deilt um það og sagt hér öllum stundum að það sé ekki um neitt að semja, búið að staðhæfa það fram og aftur. Mér finnst gott að þessi umræða hafi leitt til þess að jú víst, það er um eitthvað að semja. Stjórnarandstaðan er búin að tala um það og það er líka rétt, Evrópusambandið er ríkjabandalag sem byggir á sameiginlegum reglum. Það vita allir. En það þýðir ekki að öll aðildarferli séu eins eða það sé ekkert svigrúm til samninga um útfærslur eða aðlögun.“

Í lok ræðunnar sagði Þorgerður Katrín:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Mér finnst stjórnarandstaðan…

„Það sem mér hefur þótt áhugavert líka er að stjórnarandstöðuflokkarnir hafa ekki getað sagt hér skýrt og ekki heldur í Silfrinu, hafa beinlínis komið sér undan því, þegar þessi þjóðaratkvæðagreiðsla verður 29. ágúst, ef það kemur ákveðin niðurstaða — af því að ég er búin að segja að við í Viðreisn, ef það kemur nei, þá virðum við þá niðurstöðu og við höldum áfram, vinnum út frá henni, höldum áfram að styrkja EES-samninginn og standa vörð um hann.

Við þurfum greinilega að laða stjórnarandstöðuna aðeins með okkur í það af því að hún hefur ekki alveg verið að tala einum rómi hvað það varðar. En ef niðurstaðan er já þá hafa allir ríkisstjórnarflokkarnir sagt: Við munum virða niðurstöðuna. Þessa niðurstöðu, þetta svar hefur enginn úr stjórnarandstöðunni þorað að segja af því það er alltaf þetta sama: Það er aldrei rétti tíminn, hvað þá rétta spurningin. Mér finnst stjórnarandstaðan eftir þennan dag skulda þjóðinni heiðarlegt svar við því: Ætlar hún að virða niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: