- Advertisement -

„Skilur enginn hvað ég er að segja?“

„Við vildum bara fá út úr því skorið. Var þessi umsókn gild eða var hún það ekki?“

Umræðan: Inga Sæland svaraði Bryndísi Haraldsdóttur, um hugsanlegar aðildarviðræður af krafti:

„Ég er farin að halda að ég tali eitthvað annað tungumál en íslensku. Ég bara botna ekkert orðið í þessu. Skilur enginn hvað ég er að segja? Er ég eitthvað óskýr? Í fyrsta lagi langar mig til að nefna það hvers vegna Flokkur fólksins kom ítrekað með það mál inn í þingið að draga til baka — eða í rauninni ekkert draga til baka heldur vildum við fá úr því skorið, því þarna var mikið japl, jaml og fuður um það hvort þessi aðildarumsókn, sem var á tímum vinstri stjórnarinnar svokallaðrar eftir hrun, væri raunverulega dregin til baka eða ekki. Við vildum bara fá út úr því skorið. Var þessi umsókn gild eða var hún það ekki?“

Síðan sagði Inga:

„Var nóg fyrir háttvirtan þingmann Sigmund Davíð Gunnlaugsson og vini hans að senda bréf til Brussel, án þess að setja það fyrir þingið, um að hér væri bara búið að setja aðildarviðræðurnar ofan í skúffu? Það er einfaldasti hlutur í heimi að fá að vita það. Svo get ég upplýst háttvirtan þingmann um það að þrátt fyrir hennar góða og einbeitta vilja til að ráða því hvernig ég tjái mig og kem fram þá er það mesti misskilningur. Hér eftir sem hingað til mun ég algerlega geta séð um það sjálf.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: