Eflaust má rekja hækkun stýrivaxta í síðustu viku til þess að nefndarmönnum í peningastefnunefnd hafi þótt að þeir þyrftu að standa við stóru orðin.
Sigurjón Þórðarson formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Alþingi: Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins og formaður fjárlaganefndar, sagði á Alþingi í gær:
„Það er áhugavert að lesa í gegnum yfirlýsingar Seðlabankans síðasta misserið. Í fyrri hlutanum gætti ákveðinnar bjartsýni, að hávaxtastefnan væri nú loksins að skila árangri, en nú í byrjun ársins kvað við nýjan tón og í febrúar voru gefnar samhliða gleiðar yfirlýsingar um að ef ekki næðist árangur bara í næsta mánuði í lækkun verðbólgunnar þá yrði látið til skarar skríða.
Eflaust má rekja hækkun stýrivaxta í síðustu viku til þess að nefndarmönnum í peningastefnunefnd hafi þótt að þeir þyrftu að standa við stóru orðin. Í skýringum nefndarinnar kom m.a. fram að hagvísar bentu til kólnunar, það væru óveðursský á lofti hvað verðbólguna varðaði og að það væri möguleg olíuverðshækkun vegna átaka í Miðausturlöndum.
Það getur varla verið markmið peningastefnunefndar…
Það er alveg ljóst, og það sér það hver maður, að hækkun stýrivaxta hefur ekki mikil áhrif á olíuverðið. Á hinn bóginn verður að líta á það að við flytjum að vissu leyti út orku þannig að þetta er kannski ekki alslæmt fyrir okkur, hækkað orkuverð, við gerum það í formi áls.
En stundum, og ég vil segja síðustu misserin, tel ég að stórkarlalegar yfirlýsingar Seðlabankans hafi verið verri en sjúkdómurinn sjálfur. Það getur varla verið markmið peningastefnunefndar að stöðva fjárfestingar eða draga enn frekar blóðið úr atvinnugreinum, t.d. byggingariðnaði sem glímir nú þegar við samdrátt.
Það er einnig rétt að geta þess að ofurháir stýrivextir styrkja gengi krónunnar og gera það jafnvel að verkum að það verði óraunhæft að það komi inn lánsfé til að taka hér háa vexti, sem mun hafa þau áhrif að skerða samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar. Ég tel rétt að menn íhugi þessi mál betur og að Seðlabankinn, frú forseti, beini ekki aðeins orðum sínum til launþega heldur ekki síður til þeirra sem ákveða verðið í þjónustu og verslunum landsins.“