- Advertisement -

„En þetta er Samfylkingin“

„Ég hvet þjóðina til að hlusta á þessa skattaglöðu Samfylkingu því ef þið hlustið þá kjósið þið hana aldrei aftur.“ 

GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON.

Alþingi: Guðlaugur Þór gefur lítið fyrir Samfylkinga:

„Það var áhugavert að hlusta hér á háttvirtan þingmann  Örnu Láru Jónsdóttur sem var algerlega í sjokki yfir því að það komu hugmyndir um skattalækkanir. Samfylkingin má nú ekki heyra það. Það er nú meiri hryllingurinn að lækka skatta á fólk sem er að vinna fyrir laununum sínum. Og hugsið ykkur róttæknina, 35% af peningum fólksins, bara 35%, auðvitað með hækkuðum persónuafslætti,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson í þingræðu:

„Ég vil bara að allir hlusti á Samfylkinguna. Það var nefnilega þannig, virðulegur forseti, að skattprósentan var 35% og reyndar lægri. Það var engin róttækni. Það var bara sú hugmynd að fólkið fengi að njóta þess þegar það var að vinna hörðum höndum. Samfylkingin er algjörlega á móti því, algerlega. Aldrei skal það verða að fólk fái að njóta ávaxta síns erfiðis.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég hvet þjóðina til að hlusta.

Samfylkingin mun gera allt hvað hún getur til að koma í veg fyrir það. Samfylkingin ætlar bara, eins og hún er að skrökva því að það hafi verið halli á fjárlögum síðustu tíu árin, að við séum 80% í Evrópusambandinu, að skrökva því náttúrlega að Sjálfstæðismenn vilji lækka framlög til heilbrigðis- og menntamála og selja Landsbankann.

En þetta er Samfylkingin. Samfylkingin vill hækka skatta og gerir það svo sannarlega og telur það vera fullkomna róttækni þegar Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur alltaf staðið fyrir það og mun alltaf standa fyrir það, lækkar skatta. Ég hvet þjóðina til að hlusta á Samfylkinguna og vek athygli á því að núna þegar við erum að fá þessa verðbólgu og verðbólguskot þá er það vegna þess að Samfylkingin felldi allar tillögur okkar Sjálfstæðismanna um hagræðingu í ríkisrekstri og lækkun skatta og gjalda. Það olli, virðulegi forseti, verðbólguskoti. Ég hvet þjóðina til að hlusta á þessa skattaglöðu Samfylkingu því ef þið hlustið þá kjósið þið hana aldrei aftur.“ 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: