- Advertisement -

„Á hvaða leið er Sjálfstæðisflokkurinn?“

Það á að opna aftur á skattaglufur sem nýtast nær einvörðungu tekjuhæstu hópum samfélagsins.

Arna Lára Jónsdóttir Samfylkingu.

Alþingi: Arna Lára Jónsdóttir Samfylkingu deildi hart á málfutning þingmanna Sjálfstæðisflokksins i þingræðu:

„Það er ekki laust við að kaldur hrollur hafi hríslast um mig þegar það bárust fréttir af flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fór um helgina þar sem sýnt var á spilin um hvernig samfélag flokkurinn vill byggja upp. Flokkurinn vill lækka skatta upp á 140 milljarða, 140 milljarða skattalækkun sem kemur sér best fyrir breiðustu bökin í samfélaginu, 35% flatt skattþrep á alla,“ sagði Arna Lára.

Það á líka að skerða tekjustofna ríkisins.

„Það þýðir að skattar á þá sem borga í efsta þrepi lækka talsvert á meðan skattar á flesta aðra hækka myndarlega. Það á að opna aftur á skattaglufur sem nýtast nær einvörðungu tekjuhæstu hópum samfélagsins. Flokkurinn vill lækka fjármagnstekjuskatt niður í 20% og hækka frítekjumark. Lækkun fjármagnstekjuskatts fer að mestu til þeirra 10% sem eru ríkust. Afnema vill flokkurinn erfðafjárskatt sem býr til erfðabundið forréttindakerfi, skatt sem er lagður á eignir þegar þær eru færðar til á milli kynslóða, ekki á vinnu fólks eða hugvit. Hann leggst á útgreiddan arð af eignum látinna. Þar af leiðandi leggst hann þyngst á eignamestu fjölskyldur landsins. Þessar 140 milljarða skattalækkanir eru 9% af útgjöldum ríkissjóðs á þessu ári.

Nei, það á að selja eignir m.a. og jú, það á að gera hitt líka. Ég spyr: Á að selja Landsvirkjun? Á að selja Landsbankann? Á að selja Isavia eða Landsnet eða á bara að selja allar mjólkurkýr ríkisins? En það er ekki nóg. Það á líka að skerða tekjustofna ríkisins. Flokkurinn vill hætta að taka gjöld af umferð til að standa undir rekstri vegakerfisins. Það á að lækka krónutölugjöld, afnema kolefnisgjöld, hætta að innheimta stimpilgjöld og svo mætti lengi telja. Á hvaða leið er Sjálfstæðisflokkurinn? Vill flokkurinn láta taka sig alvarlega?

Gæfa íslensks samfélags er að okkur hefur tekist að byggja upp sterkt velferðarkerfi samhliða efnahagslegum vexti. Við stöndum saman og berum ábyrgð hvert á öðru. Það er leiðarljós okkar í Samfylkingunni.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: