
Lilja Alfreðsdóttir form. Framsóknarflokksins:
„Aðgerðaleysi er ekki kostur. Nú þarf skýra forystu, ábyrg vinnubrögð og vilja til að taka nauðsynlegar ákvarðanir.“
Matur, vextir og bensínkostnaður
„Fólk finnur dýrtíðina fyrst og fremst í mat, vöxtum og bensínkostnaði. Þegar verðbólga mælist 5,4 prósent, verðbólguvæntingar hækka og vextir fara hækkandi, er ekki lengur hægt að skýla sér á bak við tímabundnar skýringar eða ytri aðstæður. Stjórnvöld bera sjálf hluta ábyrgðarinnar.
Hið opinbera má ekki bæta undir verðbólgu
Hér þarf nýtt verklag.
Seðlabankinn hefur bent á að hækkun opinberra gjalda hafi ýtt undir þessa slæmu þróun. Þegar hið opinbera hækkar gjöld og álögur verulega umfram verðbólgumarkmið vinnur það gegn markmiði okkar allra að ná verðbólgu niður. Við slíkar aðstæður ætti meginviðmið stjórnvalda að vera einfalt: að auka ekki verðbólguþrýsting heldur draga úr honum.
Verðbólgusía fyrir stærri ákvarðanir
Þess vegna þarf ríkisstjórnin að taka nú þegar upp nýtt verklag og beita verðbólgusíu á stærri ákvarðanir sínar. Stærri aðgerðir (og þar með lagafrumvörp) eiga að fara í einfalt, formlegt og skilvirkt stöðugleikapróf áður en þau eru lögð fram, þannig að metið sé hvort þau auki verðbólguþrýsting eða veiki stöðugleika. Hér þarf nýtt verklag.
Tímabundin brú fyrir heimilin
Jafnframt þarf að skoða markvissar og tímabundnar aðgerðir sem létta undir með heimilum og fyrirtækjum á meðan verðbólga helst há. Þar þarf sérstaklega að horfa til matar, vaxta og bensínkostnaðar. Skoða þarf tímabundna lækkun matarskatts á nauðsynjavörum, markvissa vaxtavernd og tímabundin úrræði vegna hækkunar á eldsneytis- og orkukostnaði.
Ábyrgð, ekki aðgerðaleysi
Slíkar aðgerðir mega þó ekki verða varanlegt niðurgreiðslukerfi. Þær þurfa að vera afmarkaðar, ábyrgar og tímabundnar. Slíkar aðgerðir þurfa að vera eins konar brú þar til vextir lækka á ný. Á meðan ríkisstjórnin ræður ekki við að stuðla að lækkun verðlags með nægilega afgerandi hætti verður að byggja brú fyrir heimilin og atvinnulífið.
Nú þarf skýra forystu
Aðgerðaleysi er ekki kostur. Nú þarf skýra forystu, ábyrg vinnubrögð og vilja til að taka nauðsynlegar ákvarðanir.“
