- Advertisement -

Strandveiðar eru pólitískt skynsamlegar

„Er hæstvirtur ráðherra sammála því að leggja niður heilsársstörf og færa þau yfir í sumarstrandveiðar.“

Jens Garðar Helgason.

Alþingi: Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra skiptust á skoðunum um strandveiðar í Alþingi. Jens Garðar byrjaði:

„Árið 2021 skrifaði hæstvirtur fjármálaráðherra, ásamt fjórum öðrum, í ritið Regional Studies in Marine Science. Þar komast þeir fræðimenn sem þar skrifuðu grein að því, og ég vitna beint í, með leyfi forseta, að „strandveiðar eru þess vegna efnahagsleg sóun“.

Þess vegna langar mig að spyrja hæstvirtan fjármálaráðherra já- eða nei-spurningar. Er hæstvirtur ráðherra sammála því að færa störf, heilsársstörf, að leggja niður heilsársstörf og færa þau yfir í auknar strandveiðar? Þetta er í rauninni já- eða nei-spurning: Er hæstvirtur ráðherra sammála því að leggja niður heilsársstörf og færa þau yfir í sumarstrandveiðar eins og hæstvirtur innviðaráðherra leggur til?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ég er búinn að svara spurningunni, háttvirtur þingmaður.

Þá var komið að Daða Má:

„Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrir spurninguna og fyrir að lesa það sem ég hef skrifað, sem ekki margir gera ef ég á að viðurkenna alveg eins og er. Ég held að það sé mjög mikilvægt að halda til haga að þarna eru greiningar á kostnaði og ábata af strandveiðum og niðurstaðan þar er alveg skýr og hefur örugglega ekki breyst neitt: Það væri hægt að veiða þetta magn af fiski með ódýrari hætti og meiri hagnaði. Hins vegar eru efnahagslegu áhrifin, og það kemur fram í greininni, ekki einu áhrifin af ákvörðunum stjórnvalda og ég þarf ekki að útskýra það fyrir háttvirtum þingmönnum að á Íslandi eru rekin alls konar kerfi sem við vitum að eru dýr en við rekum vegna samfélagslegra áhrifa þeirra.“ 

Hér kallaði Jens Garðar frammí: „Svara spurningunni.“

„Ég er búinn að svara spurningunni, háttvirtur þingmaður. Ég sagði: Þetta er rétt, að úr efnahagslega ábatanum dregur, samfélagslegi ábatinn — þið gerið ykkur grein fyrir því. Fjöldinn allur af kerfum sem kosta peninga er samt til staðar þrátt fyrir að það væri ódýrara að leggja þau niður vegna samfélagslegra áhrifa þeirra og þess vegna get ég vel verið þeirrar skoðunar að strandveiðar séu skynsamleg pólitísk ákvörðun.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: