Næsta vaxtaákvörðun nálgast nefnilega óðfluga og allt og sumt og það má teljast ólíklegt að tekjur þessa árs standist. Það má ekkert út af bregða.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki.
Stjórnmál: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir sagði á Alþingi:
„Það er orðinn leiðindaósiður hjá þessari ríkisstjórn að vera stöðugt að finna leiðir til að hagræða sannleikanum eða hreinlega að blekkja. Í gær var fjármálaáætlun kynnt og þar sjáum við nýjasta nýyrðið yfir skattahækkun: Umbætur. Já, tekjur ríkissjóðs verða núna styrktar með umbótum á skattkerfinu. Það sem ríkisstjórnin er að segja þarna, frú forseti, er að hún ætlar að halda áfram að hækka skatta.
Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu, þær enduðu með gígantískum skatta- og gjaldahækkunum sem skiluðu okkur því verðbólguástandi sem við stöndum frammi fyrir núna.
Svo á að setja á bankaskatt.
Fjölgun opinberra starfsmanna er 19% á örfáum árum. Og hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Jú, skera niður innan við 1%, eða um 200 störf. Það eru sennilega talsvert fleiri sem hætta hjá ríkinu árlega vegna aldurs. Hækkun 19%, lækkun minna en 1%. Það er engin frammistaða.
Svo á að setja bankaskatt því að bankarnir eru óvinsælir, en þeir eru nú þegar skattlagðir umfram banka erlendis. Þetta endar auðvitað bara á okkur neytendum. Ríkisstjórnin varð að auka útgjöld milli ára.
Ætli heimilin geti gert það þrátt fyrir verðhækkanir? Nei, frú forseti. Þannig að margboðuð hallalaus fjárlög eru afgangur upp á milljarð, 1 milljarð. Það er frú forseti. Þessar blekkingar ganga ekki lengur. Nú þarf þjóðin á alvöruforystu að halda og alvöruaðgerðum í efnahagsmálum. Næsta vaxtaákvörðun nálgast nefnilega óðfluga og allt og sumt og það má teljast ólíklegt að tekjur þessa árs standist. Það má ekkert út af bregða. Við verðum að gera betur. Og hæstvirtir ráðherrar hafa ítrekað bent á að þau hafi ekki aukið útgjöld um 143 milljarða milli ára því að um sé að ræða verðlagsuppfærslur. Kemur ekki í ljós að ef sá liður er tekinn út fyrir sviga undanfarin ár þá er útgjaldaaukning þessarar ríkisstjórnar jafnvel enn meiri.
Frú forseti. Þessar blekkingar ganga ekki lengur. Nú þarf þjóðin á alvöruforystu að halda og alvöruaðgerðum í efnahagsmálum. Næsta vaxtaákvörðun nálgast nefnilega óðfluga.“