Alþingi: Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður Framsóknar og varaformaður þingflokksins. Rætt var um ef Ísland gengur í Evrópusambandið hvað verði þá með innflutning dýra:
„En bara svo að það sé áréttað hér og ítrekað þá styðjum við í Framsókn þjóðaratkvæðagreiðslu þegar að þessu kemur og styðjum þjóðaratkvæðagreiðslu í flestum tilfellum. En þegar lagt er af stað í ákveðna vegferð sem snýr að því um hvað á að greiða atkvæði en ekki bara að kíkja í pakkann, þá finnst mér það vera algjört lágmark að það liggi nokkurn veginn fyrir hver samningsmarkmiðin eru og að hverju á að stefna. Ég held að það sé algjört lágmark, virðulegi forseti,“ sagði Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar og varaformaður þingflokksins.
„Varðandi innflutning á lifandi dýrum þá höfum við vonandi lært af reynslunni, alla vega íslenskir bændur, og það sést best á því hvernig við höfum staðið að því að flytja inn nýtt kúakyn, þ.e. í því sem snýr að kjötrækt og holdanautgripum. Það er í formi fósturvísa sem það er gert undir mjög ströngu eftirliti til þess að reyna að varast sjúkdóma eins og mögulegt er. Það er lykilatriði í þessu.
Ég ítreka enn og aftur að það verður aldrei of varlega farið þegar við tölum um hvernig við ætlum að verja okkar búfjárstofna. Eitt af stóru málunum, eitt af langstærstu málunum fyrir íslenska þjóð, er hvernig við ætlum að verja íslenska búfjárstofna ef til þess kemur að við verðum komin inn í Evrópusambandið, sem ég vona svo sannarlega að verði ekki.“