- Advertisement -

„Viltu ekki vita meira?“

Alþingi: Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti eftirfarandi ræðu á Alþingi:

„Hér kemur þingsályktunartillaga sem er ein opna, það er nú allt og sumt, ein opna sem segir lítið sem ekki neitt. Síðan eru forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, hæstvirtir ráðherrar, spurðir út í hvort það þurfi ekki að liggja fyrir hvað þetta ferli muni kosta. Við getum gefið okkur að það muni kosta milli 1–2 milljarða miðað við hvað síðasta för til Evrópusambandsins kostaði. Hún kostaði 900 millj. kr., beinn kostnaður, nota bene, beinn kostnaður en ekki óbeinn kostnaður, allur sá kostnaður sem lagðist á ráðuneytin. Beinn kostnaður var í kringum 900 millj. kr., á verðlagi dagsins í dag um 1,5 milljarðar og það er ekki hægt að gera ráð fyrir því að það verði eitthvað minna.

Ofan á það bætist síðan að Ísland verður nettógreiðandi í Evrópusambandinu upp á tugi milljarða á ári af því að við erum jú með ríkari þjóðum Evrópu og þurfum þá að greiða inn í Evrópusambandið. Síðan liggur ekkert fyrir um það í rauninni hver þau skilyrði eru sem við setjum. Hver eru samningsmarkmiðin svokölluðu, hver eru skilyrðin sem við setjum? Það liggur í rauninni ekkert fyrir heldur. Það eina sem er sagt er: Viltu ekki vita meira? Við viljum bara vita meira.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: