- Advertisement -

Ríkisstjórnin ræðst að rót verðhækkanna

Sigurjón Þórðarson alþingismaður og formaður fjárlaganefndar:

Þess sem ég sakna og mun væntanlega verða tekið til umræðu er að auka verðmætasköpun með því að endurskoða ráðgjöf Hafró sem er augljóslega ekki að gera sig í neinni fisktegund, en þorskveiðin er um helmingurinn af því sem veiðin var áður en ráðgjöfin var tekin í „gagnið“.

Stjórnmál:

„Ríkisstjórnin kynnti í vikunni skynsamar og góðar tillögur til þess að ná niður verðbólgunni sem snúa að því að lækka tímabundið verð á eldsneyti til almennings. Tillögurnar snúa ekki aðeins að lækkun á VSK heldur einnig til þess að lækkunin skili sér til neytenda. Ásamt því að kalla eftir víðtækri samstöðu í samfélaginu til þess að sporna gegn verðhækkunum sem er að mínu viti jafnvel stærra mál.

Það hefur verið undarlegt að fylgjast með viðbrögðum stjornarandstöðunnar við velígrunduðum tillögum, en í stað þess að fagna og leggja góðar tillögur með í púkkið þá hefur aðeins verið boðið upp á billegt og innihaldslaust niðurrifstal. Þess sem ég sakna og mun væntanlega verða tekið til umræðu er að auka verðmætasköpun með því að endurskoða ráðgjöf Hafró sem er augljóslega ekki að gera sig í neinni fisktegund, en þorskveiðin er um helmingurinn af því sem veiðin var áður en ráðgjöfin var tekin í „gagnið“.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Síðan er það önnur heilög kú í samfélaginu sem þarf að ræða af breiðari hópi en sérfræðingum greiningardeilda bankanna en það er vaxtastefna Seðlabankans og þá t.d. út frá því að þegar aðrar vesrænar þjóðir búa sig undir vaxtalækkun í kjölfar olíuhækkana þá virðist vera hér í gangi séríslensk stefna sem kemur illa niður á heimilum og minni fyrirtækjum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: