Efnahagsmál: Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, skrifaði:
„Á fundum fjárlaganefndar hefur komið fram að það sé farið að gæta samdráttar og uppsagna m.a. í byggingaiðnaði vegna ofurvaxta. Það liggur fyrir að háir vextir munu ekki hafa áhrif á olíuverð og miklu frekar hækka kostnað fyrirtækja og einstaklinga sem seytlar síðan út í verðlagið.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur tekið að sér launavörslu og mögulega er hægt að skilja þessa hækkun í því ljósi, en varla er það markmið Seðlabankans herða á samdrætti í byggingariðnaði.“