- Advertisement -

„Ég vísa háttvirtum þingmanni þá bara á heimasíðu flokksins“

Ég er að spyrja hæstvirtan ráðherra hér og ætlast til þess að hæstvirtur ráðherra svari mér einfaldlega hvaða ástæður liggi þar á bak við að Flokkur fólksins sé andvígur inngöngu í Evrópusambandið.

Stefán Vagn Stefánsson.

Alþingi: Ragnar Þór Ingólfsson og Stefán Vagn Stefánsson skiptust a skoðunum í Alþingi í dag:

“…þá liggur alveg fyrir að Flokkur fólksins og stefna hans er alveg skýr. Flokkurinn styður beint lýðræði og telur að það þurfi að vera meira af því heldur en hefur verið undanfarin ár. Reyndar hefur farið lítið fyrir beinu lýðræði og þjóðaratkvæðagreiðslum. Við teljum að það mætti vera mun meira af því þannig að við styðjum það auðvitað að spyrja þjóðina með þessum hætti. En flokkurinn hefur alveg skýra stefnu og stefna flokksins er sú að flokkurinn er á móti inngöngu í Evrópusambandið. Það væri sjálfsagt of langt mál að tala um það í innan við tveggja mínútna ræðu og að fara ofan í saumana á því á hverju sú stefna byggist. Ég vísa háttvirtum þingmanni þá bara á heimasíðu flokksins þar sem ítarlega er gerð grein fyrir þeirri stefnu,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, húsnæðis- og félagsmálaráðherra, þegar hann svaraði fyrirspurn frá Stefáni Vagni Stefánssyni, þingmanni og varaformanni Framsóknarflokksins.

Stefán Vagn var ekki hrifinn af orðum Ragnars Þórs og sagði:

…við erum hlynnt þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu…

Ég þakka hæstvirtum ráðherra fyrir svarið sem var afar rýrt. Ef ég hefði viljað fara inn á heimasíðuna þá hefði ég getað gert það. Við erum í liðnum óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra og þess vegna stend ég hér og spyr hæstirtan ráðherra aftur og óska þess góðfúslega að hann bendi mér ekki á að fara á netið að leita mér upplýsinga. Ég er að spyrja hæstvirtan ráðherra hér og ætlast til þess að hæstvirtur ráðherra svari mér einfaldlega hvaða ástæður liggi þar á bak við að Flokkur fólksins sé andvígur inngöngu í Evrópusambandið. Ég er ekki að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu, ég er að tala um hina atkvæðagreiðsluna, ég er að tala um aðildina.

Ragnar Þór byrjaði seinni ræðuna á að þakka Stefáni fyrir spurninguna og sagði svo: „Ég ítreka í sjálfu sér svar mitt, að við erum hlynnt þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram undan er þar sem þjóðin verður spurð. Hvað sem síðar verður verður bara að koma í ljós, hvað kemur út úr því. En það eru auðvitað fjölmargar ástæður fyrir því að flokkurinn telur að okkur sé betur borgið utan Evrópusambandsins og eins og ég sagði í mínu fyrra svari þá ætla ég ekki að fara í einhverjum smáatriðum ofan í það, í það minnsta ekki fyrr en það liggur fyrir hvort verður farið í þessar viðræður eða ekki.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: