„Nei, Sjálfstæðisflokkurinn kaus að vinna til vinstri sem sýnir að það er ekki mikill áhugi á að standa við kosningaloforðin.“
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.
Stjórnmál: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki kom í ræðustól Alþingis í dag. Hún harmaði að Miðflokkurinn hafi verið með Sjálfstæðisflokki í meirihluta í Reykjavík. Nanna Margrét benti á að nýskráningar í Miðflokkinn slegið met í dag. Lesum ræðuna hennar:
„Í morgun bárust okkur þær furðulegu fréttir að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að keyra áfram á óbreyttri stefnu í borginni og vinna annars vegar með Framsókn, sem missti 75% af fylgi sínu, og svo Viðreisn sem hefur verið í meiri hluta í sjö af síðustu átta árum. Sama Viðreisn sem Sjálfstæðismenn komu í pontu í gær og sögðust ekki treysta, sökuðu um blekkingar gagnvart þjóðinni í máli sem varðar sjálft fullveldi þjóðarinnar. Ég held að margir hafi trúað Sjálfstæðisflokknum þegar hann lofaði breytingum í borginni. Sjálfstæðisflokkurinn keyrði á allt það sem Miðflokkurinn stendur fyrir; endurskoðun borgarlínu, lækkun skatta, tiltekt í rekstri, fjölgun bílastæða o.s.frv.“
Nanna Margrét hélt áfram og segir Sjálfstæðisflokkinn vilja vinna til vinstri.
„En hvað gerðist? Þetta vildu borgarbúar og kusu miðju-hægri stefnuna. Þeir flokkar juku langmest við sig og skilaboð kjósenda gátu ekki verið mikið skýrari. Tækifærið til breytinga strax varð mögulegt. Eftir áratug af vinstri stjórn myndaðist loks tækifæri á tveggja flokka borgaralegum meiri hluta. Þess vegna juku bæði Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur fylgi sitt á lokasprettinum því kjósendur vildu tryggja alvörubreytingar og nýtt upphaf.
Nei, Sjálfstæðisflokkurinn kaus að vinna til vinstri sem sýnir að það er ekki mikill áhugi á að standa við kosningaloforðin. Það átti bara að ná í hægri atkvæðin og vinna svo til vinstri. Nú á að endurtaka leikinn um að mynda meiri hluta með breiða skírskotun og við munum öll eftir sjö ára setu slíks meiri hluta hér í þinginu. Og eins og flestir geta gefið sér varð sprenging í nýskráningum í Miðflokkinn í morgun og hvet ég alla sem vilja að flokkar séu ekki litlir í sér og kannist við eigin stefnu og loforð til að bætast í hópinn. Það er nefnilega bara einn Miðflokkur og það var rækilega staðfest í dag.“
