- Advertisement -

Leyniherbergi á Alþingi – mikilvæg skjöl sem þingmenn mega ekki tjá sig um

Alþingi: Ingibjörg segir Þorgerði Katrínu ætla að troða Íslandi inn í ESB með góðu eða illu. Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokki hélt þessa ræðu á Alþingi, fyrr í dag:

„Hæstvirtur utanríkisráðherra leggur fram illa unna þingsályktunartillögu um aðlögunarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Tillagan er ekki bara illa unnin, hún er uppfull af hræðsluáróðri, m.a. um að ESB veiti Íslandi skjól. Þvílík firra.

Mikilvægum skjölum er síðan haldið í leyniherbergi sem aðeins nefndarmenn í utanríkismálanefnd geta skoðað en mega ekki tjá sig um. Leynd þarf að aflétta af þessum skjölum hið fyrsta. Þing og þjóð eiga rétt á þessum upplýsingum núna strax, svo ég noti kosningaorð Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum nýafstöðnu. Utanríkisráðherra Viðreisnar leggur ekki fram samningsmarkmið eða rauðar línur í mögulegum aðlögunarviðræðum, heldur reynir að fá þjóðina til að samþykkja aðlögunarviðræður með sem minnstum upplýsingum. Hún ætlar að troða Íslandi inn í ESB með góðu eða illu, enda er Viðreisn stofnuð um eitt mál, eins máls flokkur, að koma Íslandi í ESB. Síðan er sorglegt að sjá að utanríkisráðherra Viðreisnar bætir nú í og er í viðtölum við erlenda aðila og farin að ata auri og bera ósannindi upp á þá sem eru fyrir henni og ósammála um Evrópusambandsmálin.

Rétt skal vera rétt.

Þetta er ómaklegt og ég leyfi mér að mælast til þess að ráðherrann vandi sig í viðtölum hérlendis og erlendis og leitist við að skaða ekki hagsmuni Íslands með óvarfærnum yfirlýsingum og rangfærslum. Ég er m.a. að vísa í nýlegt viðtal við blaðið Guardian. Rétt skal vera rétt. Þeir sem ekki vilja ganga í yfirþjóðlega apparatið ESB vilja halda áfram góðu samstarfi við Evrópuþjóðir, vilja halda í EES-samstarfið og -samninginn sem hefur reynst Íslandi að mestu leyti hagfelldur.“

„Það var síðan merkilegt að upplifa hér rétt fyrir miðnætti á Alþingi í gærkvöldi að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hreinsuðu sig af mælendaskrá í umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra Viðreisnar sem við höfum rætt síðastliðna daga — köstuðu inn handklæðinu. Fyrir hvað og til hvers? Jú, í dag var svo staðfest að Sjálfstæðisflokkurinn ásamt Framsóknarhjólinu hefur leitt Viðreisn til valda í höfuðborginni okkar, Reykjavík. Umhugsunarvert.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: