- Advertisement -

Um ritstjórn Moggans: „Nú veður þar uppi hver fáráðlingurinn á fætur öðrum“

Grein: „Orðið á götunni er að engin ein ástæða sé fyrir þessari hnignun blaðsins, sem eitt sinn var blað allra landsmanna. Matthías og Styrmir komust á aldur og hættu. Svo komu nýir eigendur og ritstjórnarstefnan breyttist. Svo var Davíð Oddsson ráðinn ritstjóri og áskrifendafjöldinn hrundi. Mogginn varð grímulaust áróðurstæki fyrir eigendur sína, stórútgerðina í landinu, og áskrifendur flúðu áfram. Margir töldu Davíð helsta vandamál Moggans.

Nú er Davíð horfinn af velli og orðið á götunni er að hann kunni að hafa verið hafður fyrir rangri sök. Davíð hafi alls ekki verið helsta vandamál Moggans. Mögulega hafi hann verið rödd skynseminnar inni á ritstjórn Morgunblaðsins. Nú vaði þar uppi hver fáráðlingurinn á fætur öðrum, skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins hafi tekið öll völd, í raun sé Morgunblaðið orðið eins og óritstýrður fjölmiðill, engu skárri en samfélagsmiðlar.“

Hér er svo greinin öll:

Þú gætir haft áhuga á þessum


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: