- Advertisement -

Er stjórnarandstaðan á móti uppbyggingu Sundabrautar?

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Það er snúið að átta sig á því hvað ræður för hjá stjórnarandstöðunni með að leggja stein í götu mála sem stór hluti þeirra studdi áður þ.e. flýtigjöld til uppbygginar Sundabrautar.

„Allt frá því að umræða um Sundabraut hófst af alvöru fyrir 4 áratugum síðan þá hefur ávallt verið gert ráð fyrir því að framkvæmdin verði fjármögnuð með veggjöldum. Núverandi ríkisstjórn með innviðaráðherra Eyjólf Ármannsson og Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra í broddi fylkingar er að koma málinu í höfn. Liður í því er að búa til lagalega umgjörð um innheimtu veggjalda og gefa síðan m.a. lífeyrissjóðum að taka þátt í verkefninu með stofnun innviðafélags.

Almenn sátt er í samfélaginu um Sundabraut og fyrirfram mátti því búast við því að það sama væri upp á teningnum í þinginu og þingheimur væri samhentur um að búa till trausta lagalega umgjörð málið. Svo er ekki þar sem stjórnarandstaðan sér öll tormerki á stofnun innviðafélagsins og vill vísa málinu frá afgreiðslu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í niðurrifstali ganga þingmenn Miðflokksins allra lengst.

Það er snúið að átta sig á því hvað ræður för hjá stjórnarandstöðunni með að leggja stein í götu mála sem stór hluti þeirra studdi áður þ.e. flýtigjöld til uppbygginar Sundabrautar.

Það að verkstjórnin sé að ljúka málum sem gömlu valdaflokkarnir hafa verið að vandræðast með um áratugaskeið virðist koma róti á flóknar tilfinningar stjórnarandstöðunnar. Það birtist m.a. í sársaukafullum reiðilestri yfir ríkisstjórninni sem einkennist af vandlætingu, vanmætti og vonbrigðum yfir því að sjtórnin sé að ljúka góðum málum.

Í niðurrifstali ganga þingmenn Miðflokksins allra lengst og það kom beinlínis fram í umræðu um innviðafélagið í þinginu að þeir vildu ekki aðeins fresta málinu heldur einnig almennt fresta vegaframkvæmdum á landinu og þá í ljósi efnahagsástandsins.

Í kappi stjórnarandstöðunnar við að blása frá sér neikvæðri eimyrju er engin forsjá, þar sem hún mætir sjálfri sér í dyrunum í furðulegum tilraunum til þess að koma í veg fyrir samgönguúrbætur á landinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: