- Advertisement -

„Regluverkið í Evrópusambandinu er þungt“

Alþingi: Árni Helgason Sjálfstæðisflokki sagði í umræðunni um kosningarnar 29. ágúst um viðræður Íslands og Evrópusambandsins. Snemma í ræðu sinni sagði Árni:

„Hvers vegna er ríkisstjórnin að keyra þetta mál núna en ekki á næsta ári eins og til stóð samkvæmt stjórnarsáttmálanum? Við þessu hafa ekki fengist nein sérstaklega góð svör önnur en þau að þetta sé bara svona og það sé búið að ákveða að þetta verði þannig.“

Síðar í ræðunni sagði Árni Helgason:

„Stærsta spurningin hlýtur auðvitað að vera þessi: Vill þjóðin að Ísland óski eftir aðild að Evrópusambandinu og hefji aðlögun að sambandinu? Eða vill þjóðin segja: Það er ekki orkunnar virði að fara að eyða allri þessari vinnu í eitthvað sem við höfum hvort eð er ekki nægan stuðning við og erum ekki að fara að klára? Mig langar að taka það fram að Evrópusambandið hefur að flestu leyti verið afl til góðs í álfunni og heiminum. Það er upphaflega byggt á hugmyndinni um að besta leiðin til að tryggja frið sé með aukinni samvinnu og viðskiptum milli þjóða, með því sem síðar varð sameiginlegur markaður. Þetta hefur auðvitað allt verið til góðs og ég held að við verðum að geta rætt málið út frá því að mála þetta ekki upp sem einhvers konar fullkomnar andstæður, Evrópusambandið og Ísland. Að langmestu leyti eru hagsmunir okkar sameiginlegir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Spurningin sem við hljótum að vilja spyrja okkur er: Er hagsmunamatið þannig að við eigum að fara úr þeirri stöðu sem við erum í núna og yfir í fulla aðild? Það liggur fyrir að Evrópusambandið hefur á undanförnum árum þróast í ákveðna átt. Það hefur þróast og þróast alltaf hraðar og hraðar í þá átt að verða einhvers konar sambandsríki. Það er reglusækið. Regluverkið í Evrópusambandinu er þungt. Áhrif okkar innan þings og stofnana Evrópusambandsins yrðu ekki mikil. Við þurfum auðvitað að vera dálítið gagnrýnin á þessa spurningu, hvort og hvað full aðild færi okkur umfram það sem við höfum núna. Með EES-samningnum, sem okkur er mjög mikilvægur, tryggjum við viðskiptalega hagsmuni okkar að þessu leyti. Það er ekkert sem bendir til þess að sá samningur sé í uppnámi og það er auðvitað lykilatriði í þessu máli.“

Við mælum með að þið lesið ræðuna alla. Hana er að finna hér:


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: