Ísland/ESB: Úlfar Hauksson, sem er stjórnmálafræðingur, vélstjóri og skipstjóri, skrifaði:
„Eins og ég hef áður komið inn á hér á þessum vettvangi hef ég tímabundið aðgang að Mogganum. Það er súrsæt skemmtun að renna í gegnum Moggann.
Mogginn er svakalegur í dag. Hver dálkurinn á fætur öðrum með bjagaðri framsetningu varðandi ESB. Nú skal öllu tjaldað til í varðstöðu um sérhagsmuni. Þar er því t.d. slegið upp að Írar muni alveg örugglega koma í veg fyrir allar sérlausnir fyrir Ísland í sjávarútvegi ef til aðildarviðræðna kæmi!
Fyrir þeirri „frétt“ er vísað í ummæli Aodh O’Donnell, framkvæmdastjóra samtaka írskra sjávarafurðastöðva! Sá segir að „ekki komi til greina að takmarka aðgengi írskra skipa að íslenskri lögsögu“ og farið mikinn í því að útlista hversu illa Írar eru leiknir í ESB.

Þegar rykinu er blásið burt kemur annar sannleikur í ljós. Írar urðu vissulega fyrir töluverðum samdrætti í veiðheimildum vegna niðurskurðar í makríl og kolmunna. Og um það á umræðan að snúast.
Íslendingar hafa tekið fullan þátt í að ofveiða þessa stofna á alþjóðlegu hafsvæði sem og innan lösögu Íslands og Færeyja. Og svo er það stóra málið um aðgengi að lögsögu. Írar – já eða Aodh O’Donnell, framkvæmdastjóri samtaka írskra sjávarafurðastöðva – segist ekki geta sætt sig við að Íslendingar fengju að veiða makríl og kolmunna í írskri lögsögu nema eitthvað kæmi á móti.
Fullkomlega eðlileg krafa í raun. Það er nú allt og sumt. Írar fengju þá rétt til að veiða kolmunna og makríl af sínum kvóta í Íslenskri lögsögu hugnist þeim það.
Hins vegar er afar ólíkegt að Írar myndu herja á Íslandsmið, a.m.k. ekki hvað makríl varðar. Hann er mun verðmætari í þeirra lögsögu. En þessi brjálæðislega frétt Mogga – með tilvísun í ummæli hagsmunaaðila í írskum sjávarútvegi – er alveg makalaus…
Nú á sko að gera allt vitlaust með afstæðum sannleik… já eða bara hreinum uppspuna. Að spyrja O’Donnell út í þessi mál er svona svipað og að spyrja Heiðrúnu Lind – framkvæmdastjóra LÍÚ/SFS – um strandveiðar… nú eða ESB aðild!“