Við eigum enga sameiginlega fiskstofna með Evrópusambandslöndunum, enga.
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
„Mig langar mjög mikið til að reyna að átta mig á því eða að fá svar frá háttvirtum þingmanni, Sigmundi Erni Rúnarssyni, um hvort hann átti sig á hvað felst í þessum samningaviðræðum. Telur háttvirtur þingmaður að Ísland geti fengið varanlegar undanþágur?
Vissulega erum við ekki lítil í okkur og getum verið með kassann úti, en veit háttvirtur þingmaður hvað Evrópusambandið er? Veit hann það? Ég hefði haldið það. Ég skil það alveg að háttvirtur þingmaður vilji fara í Evrópusambandið. Ég vil ekki fara þangað.
Ég tel hagsmunum okkar miklu betur borgið utan þess en við vitum hvar Samfylkingin stendur. Málið er það að það liggur fyrir að á tíunda áratugnum voru nokkrar varanlegar undanþágur veittar. Undanfarna áratugi hefur Evrópusambandið verið mjög skýrt með það að þeir eru ekki að veita varanlegar undanþágur. Hins vegar snúast samningaviðræðurnar um það hvernig og á hve löngum tíma við ætlum að aðlaga okkur að Evrópusambandinu. Því spyr ég: Er háttvirtur þingmaður sáttur við það að fá bara tímabundnar aðlaganir eða er háttvirtur þingmaður að gera sér vonir um það að Ísland eitt landa fái varanlegar undanþágur sem önnur lönd fá ekki?
Veit háttvirtur þingmaður að ekkert ríki hefur fengið varanlega undanþágu.
Þetta er lykilpunkturinn. Þetta er það sem við þurfum að fá svar við og því spyr ég varðandi auðlindir landsins: Finnst háttvirtum þingmanni ásættanlegt að fá ekki varanlegar undanþágur og veit háttvirtur þingmaður að ekkert ríki hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, ekkert, hvorki á tíunda áratugnum né á undanförnum áratugum?“
„Ég þakka fyrir þessa spurningu frá háttvirtum þingmanni Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Ég lagði áherslu á það í ræðu minni að við förum út í þessar samningaviðræður, ef af verður, með kassann úti og munum sækja um það, krefjast þess að við fáum varanlegar undanþágur vegna þess efnahagsumhverfis sem Íslendingar búa við.
Það hefur verið á það bent í umræðunni að þegar kemur að sjávarútvegi þá verði oft horft til efnahagslegs stöðugleika. Við getum ekki ógnað þeim efnahagslega stöðugleika sem við byggjum fyrst og fremst á, sjávarútvegi og eftir atvikum landbúnaðinum sömuleiðis. Þess vegna munum við af fremsta megni sækja fram með varanlegar undanþágur í huga vegna hnattstöðu, vegna þess t.d. að við eigum enga sameiginlega fiskstofna með Evrópusambandslöndunum, enga.
Við höfum einn sameiginlegan stofn með Norðmönnum og þeir eru, vel að merkja, ekki í Evrópusambandinu, og það er Norður-Atlantshafssíldin. Þetta er skýrt. Við förum ekki í þessar samningaviðræður með leikinn fyrir fram tapaðan, alls ekki,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson án þess að svara beint, veit hann hvað Evropusambandið er?