- Advertisement -

Á Grímseyjarsundi

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði í gærdag:

Í dag fór ég í sjóferð til Grímseyjar og var tilefnið að vera viðstaddur vígslu Miðgarðakirkju. Ferjan Sæfari sem flutti okkur farþegana norður að heimskautsbaug var svo sannarlega lúið far, en farþegarnir voru ekki af verri endanum þar sem um var að ræða þjóna þjóðkirkjunnar sem voru að færa fámennum söfnuði gjafir og glæstan söng. Móttaka Grímseyinga var svo sannarlega höfðingleg og biskupinn okkar Guðrún Karls Helgudóttir stýrði athöfninni af mikilli hlýju og heilagleika.

Það væri ekki úr vegi ef stjórnvöld gerðu nú örlitla tilraun til þess að efla byggðina í Grímsey sem fæli ekki annað í sér en að gefa Grímseyingum 12 mílna landhelgi í nokkur ár til þess að ástunda frjálsar vistvænar veiðar.

Ég er viss um að það yrði til þess að ferjan Sæfari yrði endurnýjuð með snatri, byggðin yrði blómlegri og sama má segja um gjöful fiskimið í kringum Grímsey.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: