- Advertisement -

Að lifa á þróun ráðstöfunartekna

„Þessi hópur lifir ekki á þróun ráðstöfunartekna. Hann lifir á því sem kemur í vasann. Það lifir enginn á 200.000 kr. Þá spyr ég: Er hæstvirtan fjármálaráðherra sammála því að hækka þessa hópa um 3,6% og okkur þingmenn og ráðherra um svipaða prósentutölu sem þýðir að ráðherra fær upp undir 70.000 kr. á mánuði en þessi hópur 9.000 kr.? Er þetta í lagi? Ég segi nei.“

Þetta sagði Guðmundur Ingi Kristinsson. Flokki fólksins, þegar hann skiptist á skoðunum við Bjarna Benediktsson, stöðu þeirra sem allra verst eru settir. Bjarni hafði áður sagt lífeyrisþega aldrei hafa haft það eins gott og nú.

Guðmundur Ingi:

„Þetta ætti að snúa þessu snúast algerlega við. Það er út í hött að tala um einhverja þróun ráðstöfunartekna þegar bilið gliðnar alltaf meira og meira, við eigum að hætta með þessar prósentutölur og taka upp krónutölur. Er hæstvirtur fjármálaráðherra ekki sammála mér í því að við ættum að snúa þessu við, þannig að eldri borgarar og þeir sem verst hafa það fái 70.000 kr. en við fáum þær 9.000 kr. sem þeim eru boðnar?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Bjarni kom sér undan svari.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: