- Advertisement -

Að vera aðeins einni sekúndu frá fátækt

Svo ég biðla til almennings að knýja á um að örorkulífeyrir verði hækkaður þannig að hann sé amk. eins og lágmarkslaun.


Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, skrifar:

Almenningur verður að vita að fólk sem veikist, fatlast eða fæðist fatlað lifir ekki sældarlífi af strípuðum örorkulífeyrir en hann er útborgaður í dag um 212.000 kr. Fólk verður að skilja að það sjálft er bara einni sekúndu frá því að lenda í þessum aðstæðum, að þurfa að lifa af þessari upphæð.

Þú gætir haft áhuga á þessum
 Þuríður Harpa.

Fólk verður að vita að flestir eru á strípuðum örorkulífeyri og að þeir sem ná 300.000 kr. í heildarlaun fyrir skatt, fá heimilisuppbót og aldurstengda uppbót. Þetta eru lágar upphæðir og skerðingar enn allt að 100%. Þú þarft að vita að þú ferð sennilega afar illa ef þú lendir í því að veikjast af t.d. krabbameini eða slasast.

Svo ég biðla til almennings að knýja á um að örorkulífeyrir verði hækkaður þannig að hann sé amk. eins og lágmarkslaun og að dregið verði verulega úr tekjutengingum og að kr. á móti kr. verði aflögð. Þú þarft að spyrja þig hvort þú gætir lifað af 212.000 kr. á mánuði ævina á enda?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: