- Advertisement -

Af hverju eru þingmenn í sumarfríi?

Er atvinnufrelsi Kristjáns Loftssonar í alvörunni meira virði en atvinnufrelsri allra sem starfa í þessari grein? Eða skilja þau ekki alvöru málsins?

Katrín Oddsdóttir.

Katrín Oddsdóttir skrifaði:

„Hvernig finnst til dæmis frelsisflokknum XD það góð hugmynd að tjilla í garðinum frekar en að ræða þá staðreynd að nú hangir iðnaður sem veltir 25 milljörðum á bláþræði vegna fyrirhugaðs tapreksturs við langreyðaveiðar? Er atvinnufrelsi Kristjáns Loftssonar í alvörunni meira virði en atvinnufrelsri allra sem starfa í þessari grein? Eða skilja þau ekki alvöru málsins?

Áður en Svandís bakkaði voru þessir blessuðu Sjallar bláir í framan og krefjast þingumræðu um hvalveiðar. Núna þegja þeir sömu.

Það að ekkert hafi heyrst í Lilju Alfreðs er svo kapítuli út af fyrir sig.

Þingið er búið að vera í sumarfríi í marga mánuði og nú kalla Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðanda (SÍK) á þingið með þessum rökum:

„Íslensk­ur kvik­myndaiðnaður hef­ur verið í mikl­um vexti und­an­far­in ár og er um þess­ar mund­ir að festa sig í sessi sem ákjós­an­leg­ur áfangastaður fyr­ir hin ýmsu fram­leiðslu­verk­efni. Í þessu sam­hengi má nefna að velta kvik­myndaiðnaðar nam um 25 millj­örðum á síðast liðnu ári, þar af er stór hluti út­flutn­ings­tekj­ur.

Afstaða alþjóðlega kvik­myndaiðnaðar­ins til hval­veiða veg­ur þungt hvort upp­bygg­ing síðustu ára haldi áfram eða að Ísland verði sniðgengið. Íslensk stjórn­völd hafa á und­an­förn­um árum lagt mikinn metnað í að efla sam­keppn­is­hæfni ís­lensks kvikmyndaiðnaðar”.

Það að ekkert hafi heyrst í Lilju Alfreðs er svo kapítuli út af fyrir sig.

Einu aðilarnir sem standa í lappirnar í þessu máli eru veðurguðirnir um þessar mundir.

Viðeigandi lokaorð hér:

„Hvet­ur stjórn SÍK ís­lensk stjórn­völd til að horfa til heild­ar­hags­muna ís­lensks sam­fé­lags og von­ast eft­ir skjótri sam­stöðu flokka um hval­veiðibann.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: