- Advertisement -

Af ybbum, rasisma og ekki rasisma

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tekur upp hanskann fyrir lögreglukonuna. Hann skrifar:

„Eitt helsta áhugamál ákafra ybba, austan hafs og vestan, nú um stundir er svo kölluð hneykslunarfornleifafræði.  Þá er leitað mörg ár aftur í tímann að einhverju til að hneykslast á. Frægir grínistar hafa t.d. orðið fórnarlömb slíkra „rannsókna” þegar finnast gamlir brandarar eða tíst sem þykja ekki lengur viðeigandi. Þá er þó oft litið fram hjá samhenginu og merkingunni þannig breytt.

Undanfarna daga hafa verið birtar fjölmargar fréttir um hátt í þriggja ára gamla mynd af lögreglukonu eftir að einhver rak augun í fánamerki á búningi hennar.

Mest hefur verið hneykslast á svo kölluðum Vínlandsfána. Þrátt fyrir að vera fánaáhugamaður þurfti ég að fletta fánanum upp. Það tekur þó ekki langan tíma að komast að því að hönnun fánans hafði ekkert með kynþáttahyggju að gera. Fáninn mun uppruninn hjá bandarískri þungarokkhljómsveit og átti að tákna lífsskoðanir hins norræna forsprakka sveitarinnar, þ.m.t. sósíalisma og umhverfisvernd.

Síðan hafa margir hópar notað fánann. Þeirra á meðal eru Skógar-Finnar og áhugamenn um Vínland en einnig kynþáttasinnar.

Ég er reyndar þeirrar skoðunar að óviðeigandi sé að merkja lögreglubúninga með öðru en merkjum lögreglunnar. Það er hins vegar óhugnanlegt að sjá hvernig ráðist er á konuna sem mynduð var fyrir nokkrum árum með fánamerkið og henni gerðar upp alls konar hvatir.

Eins og jafnan færa svo ybbarnir sig upp á skaftið. Nú er ljósmyndin notuð til að heimfæra kynþáttahyggju á alla lögreglumenn. Það er illa gert og ber vott um augljósa fordóma þeirra sem slíkt gera.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: