- Advertisement -

„Aldrei talar ráðherrann um almenning“

Benedikt Jóhannesson.

Benedikt Jóhannesson las grein Kristjáns Þórs Júlíussonar. Stærðfræðingurinn Benedikt las greinina með sínu augum og skrifaði:

Í morgun birtist í Fréttablaðinu greinin „Lögmætar varnir“ eftir Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra. Greinin fjallar um innflutning á kjöti frá útlöndum. Ráðherrann stærir sig af því að „við afnemum hið ólögmæta leyfisveitingarkerfi þann 1. janúar næstkomandi“. Athygli vekur sjónarhorn ráðherrans. Hann er ánægður með nýtt hafta, leyfa og skömmtunarkerfi:

Þrisvar talar hann um reglur
Þrisvar um vottorð
Þrisvar um varnir
Sex sinnum um að tryggja eða tryggingar
Sjö sinnum um heimildir
Einu sinni um kröfu
Fjórum sinnum um kerfi
Einu sinni um skilyrði
Fimm sinnum um leyfi eða leyfisveitingar
Tvisvar um vernd búfjárstofna

Þú gætir haft áhuga á þessum

Allt þetta í tæplega 300 orða grein.

Aldrei talar ráðherrann um almenning
Aldrei talar ráðherrann um neytendur
Aldrei talar ráðherrann um gæði

Ráðherrann vill nefnilega fyrst og fremst að verja landbúnaðarkerfið; ríkisstjórninni er nákvæmlega sama um neytendur og heldur stolt áfram ólöglegu kerfi til áramóta. Þá tekur nýtt leyfakerfi við. Ríkisstjórnarflokkarnir geta alls ekki hugsað sér að fólk borði það sem það vill án sérstaks leyfis.

Það er kominn tími til þess að blása til sóknar fyrir neytendur, efla almannahag og hætta að vernda sérhagsmuni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: