- Advertisement -

Alþingi hefur brugðist þjóðinni

„Alþingi hefur brugðist í því að tryggja þjóðinni eðlilegan arð af sjávarauðlindinni. Þetta var meðal annars það sem ég sagði í ræðum löngu tímabæra hækkun veiðigjalda á Alþingi í gær, “ skrifar Dagur B. Eggertsson Samfylkingu.

  • vissir þú að sáttin átti að felast í að útgerðin héldi eftir 67% af auðlindarentunni – en þjóðin fengi þriðjung?
  • vissir þú að síðustu fimm ár hefur hlutfallið ekki verið hærra en 16-18% sem komið hefur í hlut þjóðarinnar?
  • vissir þú að linnulaust hefur verið lobbíerað fyrir því að hola lögin um veiðigjöld að innan til að skapa glufur til að lækka þau, frá því sem var úr tíð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar 2009-13?
  • vissir þú að þetta ótréttlæti er ein meginástæða þess að auður og völd eru að safnast á allt of fáar hendur á Íslandi?
  • fjórar fjölskyldur og eitt Kaupfélag eiga samtals tæpa fimm hundruð milljarða í eigið fé – af þessum sökum – skv. samantek Frjálsrar verslunar.

Stjórnarandstaðan hefur talað mikið um áhrif þess að samþykkja lögin um veiðigjöld – og haft af því áhyggjur. Það er sjálfsögð umræða. En mér finnst miklu mikilvægara að ræða hvaða áhrif það hefur ef við leiðréttum þetta ekki? Ef við tökum okkur ekki stöðu með þjóðinni og tryggjum henni eðlilegan og miklu stærri hlut af arðinum af auðlidinni. Og það verður best gert með uppboði aflaheimilda.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Um þetta fjallaði sem sagt þessi ræða – og ýmislegt fleira – sem fékk satt best að segja mikil viðbrögð (og já, ég hélt það væri ekkert horft á Alþingisráðsina) og rataði í fréttir Stöðvar 2.

Ræðan í heild er hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: